Hér búa innflytjendur og fylliraftar. Hingað eru allir velkomnir en við mælum með því að fólk klæðist stígvélum og sé vopnað.
Hér er nóg af lausum íbúðum fyrir alla. Bendir á stafla af pappakössum Einnig fyrir vandláta eru hér mjög bjartar íbúðir líka. Bendir á stafla af bananakössum
Hér má ég þá vera með hundinn minn. Hann er blanda af Rottweiler/Pit Bull Terrier. Fyrri nágrannar höfðu eitthvað við hann að athuga, ég veit ekki hvað. Endalaust nöldur alltaf hreint yfir okkur gæludýraeigendum.
Fátækrarhverfið? Lagaðu nú nafnið á þræðinum.
Ég var einmitt að hugsa með mér að það væri nú eiginlega svolítið viðeigandi að hafa villu í heiti þessa þráðar, miðað við efnistökin. Það er svosem ekki við meiru að búast af svona gettó-pakki!
Sammála Önnu. Samt sem áður stingur þetta í augu, í okkar hreina og góða ríki.
Hvernig er það annars, er Baggalútía ekki fullkomin? Þarf nokkur fátækt að vera til staðar?
Hvernig er það annars, er Baggalútía ekki fullkomin? Þarf nokkur fátækt að vera til staðar?
Er það ekki viss fullkomnun að hafa aðgang að öllu mögulegu jafnt sem ómögulegu?
Fátækt er möguleg og því verður hún að vera aðgengileg.
KEIZER SOZE!
Hleypur í burtu
KEIZER SOZE!
Hleypur í burtu
Kemur haltrandi inn
Já?
Sannfærir Baggalútíu um að súg sé ekki til
Girðir síðan buxurnar sínar oní stígvélin til að verjast rottunum
Byggir upp turtildúfuhöll fyrir fólk sem er fátækt, væmið og ástfangið úr heilum 8 bananakössum og slettir bleikri málningu yfir til að gera huggulegra.sleppir nokkrum hvítum dúfum inn
Kemur arkandi úr kassahöllinni sinni Hvað viljið þið?
Hér má ég þá vera með hundinn minn. Hann er blanda af Rottweiler/Pit Bull Terrier. Fyrri nágrannar höfðu eitthvað við hann að athuga, ég veit ekki hvað. Endalaust nöldur alltaf hreint yfir okkur gæludýraeigendum.
Það er bannað að labba með hann í ól. Hér eru allir frjálsir jafnt dýr sem menn.
hendir fimmtíukalli í SvennaPenna Svona fátæklingur , haf hljóð.heldur áfram að láta einkaþjóninn sinn mála og föndra við bleiku pappakassahöllina
Það tilkynnist hjer með opinberlega að því miður er eigi neitt pláss fyrir fátækrahverfi hjer. Samkvæmt nýsamþykktu aðalskipulagi Baggalútíu á hjer að rísa kóbaltorkuver.
Fer á Kaffi Blút til að drekkja sorgum sínum
Geta fátæklingarnir ekki bara unnið í kóbaltorkuverinu?
Kannski hefur smá kjallara þar sem þau geta sofið.
Það er svo ljómandi góð hugmynd að vjer Ljómum upp. Eftir er hinsvegar að byggja kóbaltorkuverið og þarf því e.t.v. að stækka byggingarsvæðið þannig að það nái til viðbótar yfir allt það svæði er hjer er til umræðu.