Komið sæl, kæru gestapóar.
Ein er sú spurning sem brunnið hefur mér á vörum síðustu daga. Hvermig í fjáranum fer ég að því að verða mér út um ásjónu? Þegar ég skrái mig inn á gestapó, vel ég flipa sem kallast niðurskipan, þá sé ég að stendur ritað í nokkurskonar boxi,
Velja mynd úr myndasafni. Þar smelli ég og flyst þá inná svæði sem að kallast myndasagn. Þar get ég ekki séð eina skitna mynd. Er það eðlilegt? Ef svo er, hvernig vel ég þá ásjónuna?
Því spyr ég ykkur, póar, gætuð þið aðstoðað mig í þessum hremmingum mínum?Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann[
Myndirnar virðast vera búnar í myndasafninu. Sendu háttvirtum Enter póst ásamt myndinni sem þú vilt, vertu kurteis og skemmtilegur og hann mun örugglega redda þér.
Sendu Enter einkapóst og biddu hann auðmjúklega um að redda þér og hver veit nema hann gefi sér tíma til að sinna fífli eins og þér.
Þú verður að senda koparstungu til ritstjórnar - Fíflið þitt Glottir eins og fífl
Gefur frá sér vellíðunarstunuÞakka ykkur auðmjúklegast fyrir, kæru póar.
Bara til öryggis ef þú skyldir ekki hafa náð því sem hinir sögðu. Þú sendir Enter snyrtilegan og fallega orðaðan póst og sendir með myndina sem þú óskar eftir að límd sé á þig.
Til öryggis ef þetta er ekki alveg komið á hreint... sendu Enter tölvupóst á enter@baggalutur.is eða einkapóst í Póststöðinni sívinsælu... mundu að segja Frú Enter og nefndu nokkrum sinnum hvað þú hefur mikið gaman af lesbíum...
Bara til að hafa hlutina alveg á hreinu...
Sendu einkapóst eða emil á fíflið hann Enter og biddu hann fallega um fallega mynd.
Og já, mundu hvað Skabbi sagði, talaðu um lesbíu, best væri að biðja um mynd af lesbíu.
Í guðanna bænum ekki minnast á Líbíu...
Hvað þá Lýbíu.
Já eða það... Enter á slæmar minningar þaðan... hann var málaliði hjá frönsku herdeildinni hér í denn... ég held það tengist líka eitthvað dálæti hans á lesbíum... þó hann vilji sem minnst ræða það...
Til öryggis ef þetta er ekki alveg komið á hreint... sendu Enter tölvupóst á enter@baggalutur.is eða einkapóst í Póststöðinni sívinsælu... mundu að segja Frú Enter og nefndu nokkrum sinnum hvað þú hefur mikið gaman af lesbíum...
Skrattinn sjálfur. Þetta hefðirðu endilega átt að segja mér fyrr, ég er nefnilega búinn að hafa samband við Frú Enter og minntist ekkert á lesbíur.Dæsir mæðulega
Það er allt í lagi. Við erum búnir að nefna þær svo oft hér að hann mun lesa þennan þráð.
Við vonum bara að það dugi... xT
Viti menn, hér hef ég fengið aldeilis snoturt andlit. Enter hefur augljóslega lesið þráðinn.
Kallar þú þetta snoturt, fíflið þitt?Glottir eins og fífl
Það þykir mér, fyrst við erum komnir út í spurningar þá gætir þú kannski svarað mér þessu: Þykir þér fólk sem borðar ís með slátri vera með öllum mjalla?