Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer höfum gert nauðsynlegar bráðabirgðabreytingar á ráðherra- og embættismannalistanum. Þær bíða þó formlegrar staðfestingar í viðkomandi þræði en vjer breyttum þessu strax til bráðabirgða vegna þess hve málið er brýnt Hóstar lítillega og bíður eftir 'ráðherralistabreytingagjaldi'.
Enn vantar síðan landlækni, sóttvarnalækni o.fl. og er afar brýnt að ráða í þessi embætti sem fyrst í ljósi bágs heilsufars margra Gestapóa þessa daga/vikur.
Já... Rýkur til Afsakaðu þetta, gleymdi mér aðeins. Leggur þúsund hreinar nýliðameyjar, ferskar beint úr Innflytjendahliðinu, á altari forsetaembættisins
Njóttu vel en hafðu mig afsakaðan, ég þarf að leggja höfuð í bleyti og byrja teikningu á hátæknisjúkrahúsi.
Það er bráðnauðsynlegt að eiga Sóttvarnarlið. Herdeild vaskra sjálboðaliða sem koma með mótefni í bráðaþjónustu til hugsanlegra skotmarka óvina ríkisins. Skal ég bjóðast til þess hér með að vera liðsforingi þeiirrar sveitar. Hefst handa við hönnun einkennisbúnings á sveitina
Mér finnst að ég ætti að fá landlæknisembættið sem greiðasemi fyrir afnot af þeirri lóð sem hátæknisjúkrahúsið mun rísa á. Einnig hef ég lagt fram blóð svita og tár til byggingu þess (þó ekki hafi verið alveg vitað hvað var að rísa þarna í upphafi).
Ég tel að ég væri tilvalinn í störf heilbrigðisráðerra, Nú eða Óhelbrigðisráðherra Gefur frá sér vellíðunarstunu
Í krafti sérfræðiþekkingar minnar og doktorsnafnbótar þá þykir mér það tilhlýðilegt að ég verði Háskólarektor.
Skutlar áskrift að klúbbnum Cobalt Weekly á skrifborð forsetans.
Mér finnst að ég ætti að fá landlæknisembættið sem greiðasemi fyrir afnot af þeirri lóð sem hátæknisjúkrahúsið mun rísa á. Einnig hef ég lagt fram blóð svita og tár til byggingu þess (þó ekki hafi verið alveg vitað hvað var að rísa þarna í upphafi).
Ég skal gefa þér heilan Hubba Bubba - tyggjópakka ef þú lýkur verkinu vel og tímanlega. Þú mátt velja lit.
Nú er sýnist mér búið að ræna konungnum Hakuchi. Hann hefur ekki sést síðan sautjánda desember.
Hvernig stendur á því að ekki einu sinni kongafólkið okkar er óhult fyrir mannránum óvinana!
Er Hakuchi kannski haldið föngnum á b********i.is?
Hvar eru lífverðir konungsins? Og ekki segja mér að það séu leðurdvergarnir!
Þarf ekki að fara að huga að björgunarleiðangri?