Jamm minn er hengdur og konan mætir á aftökuna, sýnir engin svipbrigði en kemur stundum að gröfinni til að syrgja hann...
Þetta hljómar líka hryllilega köntrílega...
Það er rétt, flytjandinn hefur verið kallaður mesti töffari allra tíma. Og verið nefndur áður á nafn í þessum þræði.
Jarmi?
Reynir að rifja upp hvenær hann söng síðast
Kris Kristoffer[s]son?
Kris auðvitað er og verður mesti töffari allra tíma.
En mig grunar að hér sé um að ræða manninn í svörtu og lagið Long black veil. Þó minnir mig að það sé samið fyrir alllöngu síðan og ekki af Jóhanni Reiðufé sjálfum.
Já það var rétt. Getur verið að það sé ekki samið af honum en ég hef bara heyrt það í hans flutningi...
Svo meistari Tina á leik.
Breytist í Kolbrúnu Halldórs Meistari er karlkynsorð og ég legg til að fundið verði sambærilegt orð sem hentar fyrir bæði kynin. Ælir
Textinn fjallar um mann sem eyðir ævinni í að ausa gjöfum yfir unga eiginkonu sína og gengur svo langt að byggja henni veglegt hús. Húsið verður fljótt að óstöðvandi þráhyggju, og konan grætur sig í svefn yfir tilfinningalegri (og líkamlegri Blikkar) fjarlægð eiginmannsins. Loks leitar hún í faðm annars manns og eiginmaðurinn kemur að þeim. Í kjölfar þess hrynur húsið, þó ekki komi fram í textanum hvernig það kom til.
Meistarið?Starir þegjandi út í loftið
Enginn?
Lagið er flutt af mesta töffara allra tíma.
Kris Kristoferson?
Kris Kristoferson?
Að sjálfsöggðu. Nú vantar bara titilinn.
Hárrétt hjá Kúddsíkú.
Afsakið biðina.
...og...?