Tengist það Eric Clapton, vini og kviðmági Georgs?
Mighty Quinn með Manfred Mann?
Reyndar var það lag samið og upphaflega flutt af Bob Dylan, eins og svo margt annað.
Annars er ég alveg úti á þekju hérna.
Þó ég nái þá ekki tengingunni við bítlana ætla ég samt að asnast til að spyrja hvort lagið tengist einhvern vegin Frank Zappa?
Textinn fjallar um uppdiktað lyf (og skapara þess). Lyfið er þeim eiginleikum gætt að "lækna" nánast hvað sem er, en þó ekki á þann hátt sem búast mætti við. Eiginlega má segja að lyfið sé of róttækt, þ.e.a.s. að það "lækni" stærra vandamál en því var ætlað.
Og getið nú.
Ekki Zappa , Clapton eða Dylan/Mann.
Í laginu eru nefndir nokkrir einstaklingar og vandamál þeirra, þ.á.m. maður sem er of horaður, stúlka þakin freknum og náungi sem heldur að han sé Júlíus Sesar.
MMMMMMMMMMMMMMMMMMMM?
Scaffold - Lily the Pink?
Þetta er rétt hjá nýliðagerpinu. Bítlatengingin er að sjálfsögðu sú að Mike McGear, einn meðlima, er bróðir Bítilsins Paul McCartney.
Nýliðinn á því leik.
Gefur frá sér vellíðunarstunu Hah!
Innihaldslýsing texta:
Stúlka hryggbrýtur dreng, drengur drekkur óhemju mikið, drengur fremur sjálfsmorð, drengur er jarðaður og englar syngja.
Stúlka fær samviskubit og verður gardínubytta, stúlka drekkur mikið, stúlka fremur sjálfsmorð, stúlka er jörðuð og englar synga.
Og getið nú!
Gamli Nói. (Með viðeigandi viðlagi.)
Haha, nei.
Lagið er í Amerískum sveitastíl og er þónokkuð meginstreymis.
Nei. En karlpeningur er það þó.
Nei, ekki eru þetta Bítlarnir.
Söngvarinn spilar á gítar og er oftast með hvítann kúrekahatt þegar hann kemur fram.
Neineinei.
Flytjandi var tilnefndur til grammyverðlaunanna 2001 sem besti nýliðinn og kom fram á sagðri Grammyverðlaunahátíð, ásamt stór(.)(.)stjörnunni Dolly Parton.
Ekki er þetta krakkinn Steinn?
Neibb.
Flytjandinn er lítt þekktur í heimi FM hnakka á Íslandi. En ein eða tvær húsmæður kunna að meta tónlist hans.