— GESTAPÓ —
Zion deWitt heiti ég.
» Gestapó   » Vjer ánetjaðir
     1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Zion deWitt 23/11/07 23:19

Jeg er hér nýgræðingur undir viðurnefninu Zion deWitt og er Gestapói dulbúin sem heimavinnandi, þreytt, tveggja barna móðir í vesturbænum. Í slíku leynimakki er mjer þarft af illri nauðsyn að fela sem best jeg má haltrið sem þó einkennir sannan gestapóa, ásamt einglirninu. Þó hef jeg að sönnu blandast umhverfi mínu og kann nú að reyta hár mitt af þvílíkri snilli sem eingöngu raunverulegar húsmæður og þrautþjálfaðir leyniútsendarar geta tamið sjer.
Ekki hef ég mikinn gaum gefið þessum þræði í fortíðinni en hef nú ákveðið að gerast meðlimur. En þó þarf jeg nú að sinna skyldum mínum og huga að börnunum tveimur og ekki síður eiginmanninum sem hlutverki mínu fylgir, svo ég kveð yður að sinni.
kv. Zion deWitt,

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 23/11/07 23:22

‹bendir Zion á innflytjendahliðið›

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 23/11/07 23:26

Annar óvinur bókstafs hins illa ? ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við› En hvurslags nafn er Zion ? Ertu Zionisti ?

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Huxi 23/11/07 23:30

Það verður vart þverfótað fyrir nýgræðingnum hérna. ‹Klórar sér í höfðinu› Úpps, þetta hefði ég ekki átt að gera, nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði. ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Misheppnaður valdaræningi * Efnilegasti nýliði No: 1 * Doktor í fáfræði * Faðir Gestapóa * Frændi Vímusar, Madam Escoffier og Herbjarnar Hafralóns * Forstöðumaður Veðurfarsstofnunar Baggalútíska Heimsveldisins * Forstjóri PRESSECPOL * Grænn
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Zion deWitt 23/11/07 23:33

ja nafn það hljómar ekki ólíkt mínu gefna nafni, svo hefur það virkað vel í netheimum fram til þessa. ‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið› finnst yður það óheyrilega afkáralegt?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 23/11/07 23:36

Nafnið er ekki verra en hvað annað. Betra en slatti af nöfnum hér. Farðu nú að haska þér í Innflytjendahliðið.

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/11/07 10:01

Velkomin.... xT

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 24/11/07 10:49

Velkomin Sæunn. Það er alltaf frábært að fá fleira kvenfólk. Verður spennandi að sjá hvaða litur leynist undir gráa apanum.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Zion deWitt 24/11/07 14:05

Takk allir fyrir hlýlegar mótökur.
Jú jeg er kvenmaður en liturinn verður þó bara að koma í ljós þar sem engar mynir eru til í myndasafni.
En Jarmi, segðu mér eitt. Ertu svona góður giskari eða þekkiru mig einhversstaðar frá með nafni?

listen very carefully I shall say this only ence
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/11/07 16:52

Velkomin frú Sæunn. Skrif þín gefa til kynna að þú gætir vel blómstrað á þessu vefsvæði (þó ég mæli með stórum stafi í upphafi setningar, sjá færslu yfir ofan). Megir þú njóta þinna stunda meðal okkar.

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Zion deWitt 24/11/07 17:55

Takk fyrir það! Jeg hef tekið eftir þessum littlastafskvilla mínum og reyni að vinna bót í máli.

listen very carefully I shall say this only ence
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 24/11/07 23:55

Zion deWitt mælti:

Takk allir fyrir hlýlegar mótökur.
Jú jeg er kvenmaður en liturinn verður þó bara að koma í ljós þar sem engar mynir eru til í myndasafni.
En Jarmi, segðu mér eitt. Ertu svona góður giskari eða þekkiru mig einhversstaðar frá með nafni?

Það stendur nú bara Sæunn þarna í nafninu þínu. Skrifað reyndar á furðulegan útlenskan hátt. Svona svipað og ef ég reyndi að fela mig bak við nafnið 'Yarme'. Fólk væri fljótt að sjá í gegnum það.
Annars er ég á móti dulnefnum, vil bara að fólk komi fram undir sínu rétta nafni, eins og næstum allir hér á Gestapó gera.
Sama gildir með myndirnar, fólk á bara að skila inn löggiltri passamynd og þá eru allir sáttir.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Zion deWitt 25/11/07 00:01

Jú jú svona einsog þú Hr. Iggy Pop.

listen very carefully I shall say this only ence
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 25/11/07 00:04

Zion deWitt mælti:

Jú jú svona einsog þú Hr. Iggy Pop.

Iggy Pop er léleg eftirherma af honum Jarma okkar, skilið ?

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Zion deWitt 25/11/07 00:05

skilið‹ber hönd að deri›

listen very carefully I shall say this only ence
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 25/11/07 00:13

Gott. Í gólfið með þig og taktu 30 armbeygjur. Prontó! ‹Bendir á gólfið og byrjar að telja›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 25/11/07 00:14

Já, menn eru búnir að vera að segja mér að það sé maður í útlandinu stóra sem sé alveg sláandi líkur mér. Sá heitir jú Iggy Pop (sem er sérlega mikið dulnefni held ég barasta og því ömurlegt). Þessi maður er meira og minna ber að ofan og lætur fólk missa matarlystina. Við erum afspyrnu líkir greinilega!

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 25/11/07 00:17

Hvaða tegund af beri er hann að ofan ? ‹Hrökklast afturábak og hrasar við›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
     1, 2, 3  
» Gestapó   » Vjer ánetjaðir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: