Til viðkomandi:
Er ekki að fara að koma ákveðin dagsetning á árshátíðina? Hinn 's.k.' vinnuveitandi erlendis bíður frjétta.
Til þín
Til hamingju með afmælið! Ljómar upp
Til Þín;
Vonandi reynist þú hæfari en síðasta manneskja.
Til þessa hins;
Þú laugst að mér. Ekki beint út, en þú laugst að mér. Þú lagðir stein í götu mér og þú laugst að mér. Þú heldur að ég hafi enga hugmynd og sé hálf viltaus, en ég veit. Ég veit.
Til þín.
Ekki gefast upp þó erfiðleikar steðja að. Öll él birta upp um síðir.
Til þín.
Til hamingju, þú ferð rosalega í taugarnar á mér.
Til þín.
Helvítis djöfull! Glottir eins og fífl
Til Þín:
Lærðu að svara tölvupósti tímanlega! Það er hrikalega ófagmanlegt að láta sjúkling þinn bíða þar til á morgun áður en hann fær að vita hvort hann fær tíma hjá þér á morgun!
Til mín:
Fátt er svo með öllu illt að ekki boðið eitthvað gott.
Til þín:
Djöfulsins vitleysa er þetta...
Til þín, Þú gerir æðislegan mat... og ég vildi þú værir mín.
Til þín.
Ég ætlaði ekki að gera þetta. Ég sver það!
Til Þín:
Þessi örfáu orð sem þú sagðir, gerðu mína heitustu drauma að veruleika. Þú ert sú manneskja sem gat gefið mér þetta, og það að þú valst að gefa mér þetta í afmælisgjöf kom mér svo að óvörum að ég er enn, nokkrum dögum síðar, að átta mig á hversu ótrúlegt þetta var.
Til þín
Mig langar að biðja um svolítið asnalegan greiða. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Til Þín.
Þú ert ekki hálfviti því þú hefur talsvert minna en hálft vit!