Jæja þá er okkur ekkert að vanbúnaði...
Ungur maður, skarpgreindur með mikinn reiðhjólaáhuga er í fríi á mjög dýrum ferðamannastað með kærustunni sinni Grace. Þegar hann er eitt skiptið búinn að fá sér sundsprett tekur hann buxur í misgripum. Í einum buxnavasanum finnur hann gríðarleg verðmæti og er á endanum handtekinn. Hann nær útskýra mál sitt og finna sökudólginn sem stal verðmætunum upprunalega.
Annar maður var kafari hjá breska hernum. Hann útskrifaðist úr 600 nemenda skoskum háskóla sem stofnaður var af sir William Fettes.
Þriðji maðurinn var kennari/fyrirlesari við Academy of Natural Sciences of Philadelphia lengi vel og ágætlega þekktur fræðimaður á sínu sviði. Hann vann mikið við rannsóknir á áhugaefni sínu á Kúbu og Hispaniola (því miður man ég ekki í fljótu bragði hvað eyja þessi er nefnd á íslensku). 1952 vann hann Musgrave medalíuna frá Institute of Jamaica og 1954 var hann verðlaunaður með William Brewster verðlaununum (virtustu verðlaunum á hans sviði). Eitthvað hafðist hann einnig við ritstörf.
Í Toronto, Ontario norður af Eglinton Avenue er kirkja ein.
Þessir menn ásamt blessaða guðshúsinu eiga eitt merkilegt sameiginlegt. Hvað er það?
Það hefur verið gerð kvikmynd um þá alla og kirkjuna?
Elsku Demetría. Þetta var algjörlega ófrumlegt gísk hjá þér. -10 stig. Þú mátt alveg gíska aftur en ef þér vitið ekki svarið þá er best að bulla eitthvað voða sniðugt og skemmtilegt.
Hmmm.
Þeir áttu allir kött sem hét Snati, drukku allir mjólk úr rauðu plastglasi og voru allir með Klamidíu.
And together they raped all the horses and rode of on the women, (einsog í "The three amigos")
Þeir voru báðir með skegg og sá þriðji var sköllóttur.
Kafarinn gifti reiðhjólamanninn og fyrirlesarann í kirkjunni?
Klórar sér í höfðinu
Þeir voru allir getnir við altarið af ofsatrúarpresti, mæður þeirra voru hreinar meyjar og átti drengina að eigin sögn eingetna vegna þess að ofsatrúarpresturinn byrlaði þeim ólyfjan í athöfninni sjálfri og engin vitni urðu að gtnaðinum sjálfum.
Þar að auki eru þeir allir rauðhærðir með afrógreiðslu og - 2 á öðru auga .
Annars ætla ég að giska á að allt þetta sameinist í gegnum James Bond.
Þarf ég líka að segja hvernig allt tengist?
Ef ekki þá reyni ég að næla mér í aukastig:
Kirkjan heitir held ég St. James Bond Church
Kafarinn skrifaði James Bond bækurnar
Fyrirlesarinn hét James Bond
En.. ég veit ekki alveg með seinasta gaurinn.
Giska á að ævintýri hans tengist einhverju úr Bond mynd/bók?
Þeir hétu allir Runólfur, nema á þriðjudögum þá hétu þeir Geir og voru allir með furðulegan áhuga á afdrifum rekaviðs á Hornströndum sem rak á land í febrúar 1926, klukkan átta. Enn fremur eiga þeir það sameiginlegt að vera umfjöllunarefni í spurningu í þessum leik.
Sá fyrsti hét Rip, sá annar Rap og sá þriðji sem enn er á lífi heitir Rup. Þessir þrír menn eiga auðvitað það sameiginlegt að vera frændur Jóakims aðalandar en það var einmitt hann sem fjármagnaði niðurrif á umræddri kirkjubyggingu á sínum tíma.
Þeir voru allir krútt og kirkjan er krúttleg. Þá sýnist mér þú hafa gleymt að telja upp forsetann. Skálar í kaffi
Það er búið að skjóta á ansi margt. PANG! Nú þarf að sjá hverjir liggja dauðir.
Allir giftust þeir sömu konuni í téðri kirkju?
nú skuluð þið taka eftir. þvíað þetta er rétt.
Kallarnir hétu og heita jafnvel enn í dag María og öllum var þeim strítt á því í æsku en María mey hafði beðið mæður þeirra allra í draumi um að skíra frumburð sinn Maríu.
Kirkjan er svo kirkja heilagrar Maríu en engan dreymdi það nafn á kirkjuna heldur var það misskilningur.
Það eru tuttugu bílastæði fyrir utan þessa kirkju og hver mannanna hefur á ævi sinni parkerað í tuttugu kerlingar. Þess má einnig geta að í kirkjunni eru haldnar svokallaðar örmessur sem vara aðeins í fimm mínútur hver. Mennirnir eiga það þá líka sameiginlegt með kirkjunni. Starir þegjandi út í loftið
Ég er nokkuð viss um að þessir menn eru allir rauðhærðir og að kirkjan sé með rauðmálað þak...
Þið eruð snillingar! Ég tek þetta saman fljótlega. Er hlæjandi þegar þetta er skrifað