Bíður spennt eftir næstu spurningu
Staðan eftir fyrstu spurningu er semsagt:
Albin -20 stig
Regína -10 stig
Krossgata 5 stig
Óskar Wilde 5 stig
blóðugt 10 stig
Tígra 15 stig
Þarfagreinir 30 stig
Við gefum okkur smá stund til að hía á Albin og vindum okkur svo í næstu spurningu sem er ekki svívirðileg þar sem ég er mjög þreyttur.
Spurt er um mann.
Hann er sennilega einn þekktasti þjófur á Íslandi í dag. Nánast hvert einasta barn á þessari eyju hefur heyrt hans getið og nokkuð reglulega poppar nafn hans upp í einhverjum miðlinum. Hann hefur oft komist í kast við lögin og virðist vera ómögulegt að skammast sín. Um langan tíma hefur nafn hans verið viðloðið mikla óreglu.
Hvað heitir maðurinn fullu nafni og hvað amar að honum?
Maðurinn heitir Bjúgnakrækir, og það sem að honum amar er að hann er jólasveinn með stelsýki !
Bendir á að ef átt er við Lalla Johns þá sé þessi spurning léleg og ófrumleg með eindæmum og þessi leikur muni hljóta hrottaleg örlög.
Árni Johnsen - hann er haldinn byggingarfíkn og hómófóbíu.
Ef það nværi ekki fyrir þessa eyju hefði ég sagt Lalli Jones.
En Árni Johnsen verður að vera svarið og stelsýki.
Óskar Wild fær 5 stig fyrir Bjúgnakræki en fyrir að efast um kvikindisskap minn þá missar hann einnig 10 stig. -5 stig
Ekki tókst að blekkja Þarfagreini né Albin og hljóta þeir báðir ríkuleg 20 stig að launum.
Auðvitað kemst þingmaður oft í kast við lögin og óreglan sem nafn Árna er viðloðið er auðvitað þjóðhátíð í eyjum.
Reyndar ætlaði ég að hafa textan einasta barn á þessari skeri ekki eyju en var of fljótfær.
Þá eru stigin:
Regína -10 stig
Albin 0 stig
Óskar Wilde 0 stig
Krossgata 5 stig
blóðugt 10 stig
Tígra 15 stig
Þarfagreinir 50 stig
Búast má við alvarlega ósanngjarni spurningu í fyrramálið!
Stekkur þyngd sína Kominn á núllið strax. Verð samt að viðurkenna að ég las ekki reglurnar strax og vissi ekki um þessi mínusstig. Mín mistök. Ljómar upp
Í kjú æ eru stigin ekki gefin upp fyrr en í blálokin. Það er það sem er mest spennandi.
Þú ert enginn Stephen Fry.
Og hefur sjálfsagt aldrei farið til Belgíu.Starir þegjandi út í loftið
Þú ert enginn Stephen Fry.
Og hefur sjálfsagt aldrei farið til Belgíu.Starir þegjandi út í loftið
enda er Belgía alls ekki til.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þú ert enginn Stephen Fry.
Og hefur sjálfsagt aldrei farið til Belgíu.Starir þegjandi út í loftið
enda er Belgía alls ekki til.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Eg hélt að staðurinn þar sem Vlad geymir gjöreyðingarloftbelgina sína héti Belgía. Starir huxandi út í loftið
Jæja þriðja spurning:
Er Tina St.Sebastian alltaf svona grumpy?
...djók. Hinsvegar mega menn alveg koma með einhverja skemmtilega ástæðu fyrir því, einhver stig í boði.
En í alvörunni
í þeirri stórmerkilegu bók Sálmurinn um blómið eru nöfn sumra persóna vægast sagt óvenjuleg. Sagan er sögð útfrá honum Sobeggi afa sem er Þórbergur sjálfur og fjallar um stúlku sem bjó í blokkinni hans og er smám saman að læra inn á heiminn og tilveruna. Þórbergur talar ávallt um hana sem litlu manneskjuna þó hún hafi kallað sig annað. Sérstaklega er bókin einmitt skemmtileg fyrir frásagnarstílinn þar sem Þórbergur vitnar oft til orða litlu manneskjunnar um ýmsa hluti. T.d. eru bílar varla nefndir annað en dödö.
Hvað kallaði litla manneskjan sig, hvað hét hún í alvörunni og hvað taldi hún Sobeggi afa vera sem hann gerði lítið í að leiðrétta? (Einn gestapói er það líka!) Fíflagangur, útúrsnúningar velkomnir og verðlaunaðir ef þú veist ekki svarið.
Nei Tina er bara svona grömpí þegar hún er vakandi.
Tekur upp blað og penna
En að hinni spurningunni.
Þetta finnst mér frekar ógeðfelt.
Ef orðalaginu er hagrætt örlítið, má lesa úr þessu að Sobeggur afi sé í raun einstæðingurinn í blokkinni og litla stelpan er að vaxa og þroskast og það virðist æsa gamla og reynir hann iðulega að ná henni í bílinn að gera dödö.
Slær sjálfan sig utanundir fyrir svona saurugan hugsunarhátt
Lilla Hegga heitir litla manneskjan og Sobbeggi afi var eitthvað sem ég man ekki lengur hvað erfer frá skjánum til að finna ritsafnið
Ekki man ég hvað hún Lilla Hegga kallaði Sobeggi afa, en umskiptingapælingarnar þeirra man ég vel. Svo við skulum bara segja að hún hafi sagt hann unnskipting. Já, Lilla Hegga hét Helga Jóna, ekki man ég hvers dóttir.
Hegga la var fyrsta nafnið hennar Lillu Heggu.
Helga Jóna Ásbjarnardóttir (Asipabbi).
Ætli Sobbegi hafi ekki verið mömmugöggumanninn?
Hún kallaði hann svefnlausa manninn = Sefur ekki = Sofðu ekki = Sobðu ekki = Sobðu eggi = Sobeggi
Lilla Hegga hét Lilja Hekla. Sobbeggi afi var maðurinn sem tók ekki sorpið.