Velkominn í heiminn besti gestapói. Til hamingju með barnið Nornin og B. Ewing!
Heldur áfram að föndra litla fígúru, tekur B og svo annað B og festir saman í vængi
Hjartanlega velkominn á Gestapó og í meinta raunheimatilveru sem vissulega er bara plat. Nýr dagur reis með nýjum Glúmi. Í þetta sinn lítill, sætur og töfrandi svampur Glottir eins og fífl ... eða alla vega afkvæmi Nornarinnar og B. Ewing. Hjartanlegar hamingjuóskir frá Sívertsensetrinu frá Sívertsen-DeTrix mafíunni. Megi BEBE verða öllum til sóma, bæðí sjálfum sér og foreldrum sínum! Hann byrjar alla vega vel með að vera vel skrifandi. Ljómar upp Ég geri það að tillögu minni að BEBE EWING megi sleppa við innflytjendahliðið enda ekki aðfluttur heldur líklega fyrsti innfæddi ríkisborgari Baggalútíu!
Velkominn hingað á Gestpó Bebe Ewing. Og til lukku foreldrar!
Til hamingju, öll þrjú. Ljómar upp
Hjartanlega til hamingju kæru B.Ewing og Norn. Ungherrnan býður Riddarinn velkominn og hlakkar til að heyra meira um hans hagi og uppvöxt...Þetta er nú aldeilis viðburður í okkar litla heimi...Ja-hérna-hér.
fær smá rykkorn í augað og brosir allan hringinn
Velkominn í heiminn Bebe litli... kærar kveðjur til foreldranna... Færir Bebe risastóran kút af lýsisblönduðu últrakóbaltákavíti.
Til hamingju. Færir bebe afréttara
Frábært ! Innilega til hamingju Norn og Bjúving Færir Bebe milljón tonn af ungbarnakóbalti.
(Með hliðsjón af lit foreldranna: Ertu ekki alveg örugglega grænn ?)
Kærar og innilega hamingjuóskir með drenginn Norn og Bjúing og til hamingju þú sjálfur Bebe með að eiga svona eðalforeldra!
Gefur Bebe hæ-fæv
Velkominn töffari.
Þú ert sannur blámaður, svo mikið er víst.
Reynir að herma eftir nýju gengjamerkjunum sem Bebe sveiflar
Þar kom að því! Velkominn í heiminn og hingað á gestapó félagi. Til hamingju Norn og Ewing! Pokarnir undir augunum eru partur af prórgramminu!
Megi þetta barn verða snillingur á öllum sviðum og hugsa vel um ykkur í ellinni! Til hamingju elsku krúttin ykkar.
Til hamingju.
Til hamingju!!!
Velkominn Bebe litli, efast ekki um að þú verðir foreldrum þínum til sóma sem fyrsti hreinræktaði prinsinn af Gestapó.
Ástarkveðjur til litlu fjölskyldunnar frá Stelpinu.
Velkominn í heiminn Bebe og innilegar hamingjuóskir B. Ewing og Norn. Ég tek undir með Ívari og finnst algerlega sjálfsagt að innfætt kríli sé yfir innflytjendahlið hafið.
Fékkstu ekki örugglega litagenin frá pabba?