Það er ekki komið enn þá en kemur örugglega.
Hins vegar var það versta sem kom fyrir mig í gærr, að sofna 2 tímum fyrir útsendingu og sofa af mér meira en hálfan þáttinn.
Er frekar súr út af því.
Það versta er að komast ekki með Dulu og krakkaskaranum í Húsó. Er með 1/5 af skaranum heima.
Ég var að verða búinn að hlaða niður tiltölulega nýjum þætti af Party-Zone. Og þó að ég hafi ekki vitað hvernig hann var, þá var mig farið að hlakka nokkuð til að heyra hann; og kannski eiga hann á harða disknum og hlusta á hann í tætlur seinna meir. En þegar aðeins 35 mínútur og 11% voru eftir af niðurhleðslunni, hljóp einhver snurða á þráðinn. Og allt hvarf. Ég verð ekki samur maður í kvöld ... Brestur í óstöðvandi grát
Ég þurfti að tæma rotþró. Lítur á innleggið fyrir ofan Það virðist nú ósköp léttvægt miðað við að missa af party-zone...
Eftirfarandi skrif af einhverri síðu einhvers staðar.
Mér finnst þetta vera athyglisverð kenning sem þú situr þarna í gang með [Nafn]. Þetta er í fyrsta sinn sem ég heyri [Nafn] vera linkaða við Bestaflokkinn...
Ef satt reynist að [Nafn] sé að koma sínum skoðunum á framfæri í Borgarstjórn með auðæfum sínum - hlýt ég að passa á það að kjósa Bestaflokkinn. Hafið hugsað mér að gefa fjórflokkunum fingurinn með því að kjósa Bestaflokkinn. Sit það á ís þar til að þú hefur gefið mér betri upplýsingar um málið.
Reynslan segir mér að þetta eigi bara eftir að versna og dagurinn er varla hálfnaður.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Uncle Jimmy dó í dag.
Uncle Jimmy var bróðir minnar elskulegu tengdamóður.
Uncle Jimmy fór til Kóreu að berjast fyrir Truman.
Uncle Jimmy kom klikkaður heim frá Kóreu.
Uncle Jimmy var kexruglaður fenjadýraveiðandi ruglukollur sem átti hlaðna byssu bak við hvurja hurð bara ef sovétmenn skyldu ákveða að gera árás.
Uncle Jimmy var snillingur.
Í fyrradag lentum vér í aftanákeyrslu, og í dag finnum vér eigi lyfin. Vart á af oss að ganga núorðið.
Voru lyfin nokkuð í skottinu?
Nei, þau voru nú í vasanum, en eru þar eigi lengur. Ári verkjar oss í bakið.
Í gær sprengdi ég tölu af buxunum mínum... rétt áður en ég steig á svið á mjög mikilvægum tónleikum. En axlaböndin björguðu því... Og bassinn lá fyrir slysinu.
Ég fékk gommu af snjó inn á milli rasskinna. Lærði í framhaldinu að monta mig ekki af stökkkunnáttu fyrir framan fögur fljóð.
Ég fékk ekki nudd. Brestur í óstöðvandi grát
Ég fékk ekki inngöngu í land það er ég sóttist eftir og vegabréfið var tekið af mér... fékk reyndar inngöngu (og vegabréfið) eftir að hafa pungað fram miklum fjárhæðum. Já, svona er veröldin í dag.