Ég þurfti að vakna kl. 7:30... á sunnudagsmorgni! Glæpsamlegt.
Manneskja frá alþjóðlegu fyrirtæki sem ég átti að funda með í vinnunni mætti ekki á fundinn og þar af leiðandi varð ekkert úr honum. Ég er hálfmóðgaður. Á hinn bóginn slapp ég við að blaðra í klukkutíma við ókunnuga manneskju og svara mögulega hvimleiðum spurningum um leið.
Ég þurfti að fljúga eldsnemma í morgun og það var ekki einusinni almennileg flugfreyja í vélini, heldur var þetta foráttuljótur kall.
Að lesa um afar ljóta framkomu fólks í garð annars fólks réttlætt með góðmennsku.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
En gerist það ekki á hverri mínútu um allan heim.
Í dag átti ég frí í vinnunni og þð versta sem gerðist var (miðað við að þetta var FRÍ dagur var ):
Vaknaði kl 8 og fór með grislinganan tvo í leikskólann, fór svo á tvo foreldrafundi í röð þar, var komin út úr leikskólanum um hálf 11. Fór svo bein tí krabbameinsskoðun kl 11.
Þegar krabbameinsskoðunin var búinn og ég 2600 kr fátækari fyrir að láta einhvern fruntalegan kvensjúkdómafræðing krukka í mér fór ég í blóðbankann að gefa blóð og þegar ég var hálfum lítra af blóði fátækari en samt ágætlega södd fór ég með bílinn minn í smur inná smiðjuvegi hjá honum Jóa vini mínum.
Þegar ég var búin að punga út tæpum 11 þúsund kalli þar þá fór ég í regatta búðina og keypti vetrargalla á börnin mín og úlpu fyrir mig, þar fóru 24 þúsund krónur og svo sótti ég mömmu í IKEA og þar fékk ég mér eldhúsborð og 2 kolla, ásamt lampa og forstofuhengi..
Þegar ég var tæpum 30 þús fátækari í viðbót þá fengum við okkur smá að borða og keyrðum heim, ég bar helminginn með mömmu upp á aðra hæð og fór svo heim þar sem eldri sonur minn var orðinn óþolinmóður vegna þess að ég var víst búin að lofa uppí ermina á mér að kaupa handa honum gítarhero leikinn í elkó, jú ég pakkaði öllum börnunum saman og brunaði með þau niðrí skeifu kl hálf 7 og náði að kaupa þennan leik á 8 þús.
Fór svo í bakaleiðinni í 10-11 og fékk mér eitthvað farfalle og pitsu, henti í ofninn þegar heim var komið of skrúfaði borðið mitt og stólana saman sjálf.
Henti börnunum í háttinn eftir matinn og var búin að tala í gemsann lungað úr deginum þannig að hann varð batteríslaus.
Núna sit ég og er rétt að njóta þess að eiga frí.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Úfff. það sem ég lenti í í dag, er eiginlega alveg rosalegt. Ég er að fara í mjög mikilvægt próf á föstudaginn, Söngpróf það er að segja. 6. stig. Ekkert minna sko.Maður þarf að skila inn lista með ákveðið mörgum lögum. Á listanum eru aðrir listar sem eru A, B C og D. Ég skilaði mínum með góðri samvisku fyrir helgi, var kölluð inn á teppi í dag þar sem mér var sagt að það vantaði lag úr lista D sem ég ætlaði að syngja á prófinu. Ég bara alveg í mínus. Vissi ekkert hvað ég átti að segja, En það kom svo ég í ljós að ég þarf að gjöra svo vel að læra nýtt lag utan að á fjórum dögum og brillera svo á því á prófinu á föstudaginn kl 16. Búin að vera í smá sjokki yfir þessu í dag.
En maður er svo góður.. að þetta reddast...
Ég vaknaði..Brestur í óstöðvandi grát
Ég fékk ekki kaffi fyrr en í hádeginu. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Vjer þurftum að vakna fyrr en síðustu tvo daga.
Ég gleymdi heyrnatólunum af mp3spilaranum heima svo ég var tónlistarlaus í vinnunni sem var ferlegt...
Það versta er ekki búið enn. Dæsir
Ég svaf yfir mig. Vonandi er það það versta í dag.
Ég þurfti að húka í borgarnesi frá hálfátta til tíu. Verra gerist það varla.
Úfff. það sem ég lenti í í dag, er eiginlega alveg rosalegt. Ég er að fara í mjög mikilvægt próf á föstudaginn, Söngpróf það er að segja. 6. stig. Ekkert minna sko.Maður þarf að skila inn lista með ákveðið mörgum lögum. Á listanum eru aðrir listar sem eru A, B C og D. Ég skilaði mínum með góðri samvisku fyrir helgi, var kölluð inn á teppi í dag þar sem mér var sagt að það vantaði lag úr lista D sem ég ætlaði að syngja á prófinu. Ég bara alveg í mínus. Vissi ekkert hvað ég átti að segja, En það kom svo ég í ljós að ég þarf að gjöra svo vel að læra nýtt lag utan að á fjórum dögum og brillera svo á því á prófinu á föstudaginn kl 16. Búin að vera í smá sjokki yfir þessu í dag.
En maður er svo góður.. að þetta reddast...
Þú ferð létt með það. Ég var reyndar svo heppin að sleppa 6. stigi. Bíddu þar til þú tekur 8. þá fyrst verður þú taugahrúga.
Konan sagðist þurfa að fara að komast á tupperwerekynningu.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Konan sagðist þurfa að fara að komast á tupperwerekynningu.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Argar af hlátri Má ég bjóða konunni þinni með á fatakynningu? Ég eyddi 13 þúsund krónum þar í fyrradag.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Annars lenti ég eiginlega ekki í neinu slæmu í dag, þannig séð. Nema náttúrulega að þurfa að baka, bött vott els is njú.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Verri helmingurinn var tekinn á 115 km/klst. .. Þar fór jólagjöfin hans! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er