Dula fékk ljómandi góða hugmynd, en mér finnst ótækt að þetta sé ekki leynileg kosning og bjó því til könnun sem hægt er að taka þátt í hér.
Niðurstöðurnar verða sendar mér í tölvupósti og ég skal senda þær áfram á formann skemmtinefndar.
Þetta er mikil framför Ljómar upp. Hinsvegar finnst oss vanta þarna kosningu um viss atriði, t.d. mesta laumupúkann, frumlegasta/hugmyndaríkasta Gestapóann og kannski eitthvað fleira. Síðan er bara einn möguleiki í 6-8. en þrír í 1-5. Svo þykjumst vjer vita að hver sem er geti kosið, ekki bara heimavarnarliðið hjer (ekki er alveg víst að það komi að sök).
Að lokum leggjum vjer til að einnig verði kosinn mesti nöldrarinn.
Ljómar uppFlott framtak Norn, knúsar Nornu og kúluna fast Svo má koma með kynþokkafyllsta póann , aðal parið osfrv. Hvernig er það, sérðu hver kýs hvað eða hverjir kjósa aftur og aftur.Glottir eins og fífl
Já, hvernig væri að fá uppástungur um fleiri flokka?
Ég skal svo bara smella fleiri spurningum í könnunina Ljómar upp
Tökum þetta sem könnun á könnuninni og uppástungur eru vel þegnar
Ætla að fækka uppástungumöguleikunum í einn í hverjum flokki... það er annars svo ofsalega ruglingslegt að lesa úr þessu!
Ah, meira að... það er bara hægt að vera með 10 spurningar í fríkeypis útgáfunni af þessu dóti.
Þarfagreinir gæti örugglega búið eitthvað þessu líkt til og haft fleiri spurningar í boði.
Eigum við að biðja hann fallega?
Jásetur upp hvolpaaugun Eeeeeelskuuuu Þaaaarfiiii.
Minn eftirlætispói er klárlega Þvottapoki Aðgangsharður.
Minn eftirlætispói er klárlega Þvottapoki Aðgangsharður.
Lyppast niður af hlátri
Nefnduð þið nafn mitt? Ég get hent einhverju saman. Getum við ekki bara ákveðið flokkana hérna í þræðinum og síðan klambra ég saman könnun?
Er það ekki of mikil fyrirhöfn að kjósa besta félagsritið?
Er ekki of mikil fyrirhöfn að vera að velja fólk í þessa flokka?
Ég býð mig bara fram í alla flokka, svona til að einfalda þetta fyrir ykkur.
Er það ekki of mikil fyrirhöfn að kjósa besta félagsritið?
Það yrðu afskaplega skiptar skoðanir á því, án efa - þannig að erfitt gæti orðið að finna afgerandi sigurvegara.
Annars man ég að á síðasta nefndarfundi kom til umræðu að nefndin tilnefndi sjálf kandídata í öllum flokkum. Er það kannski of takmarkandi?
Jú, ég hefði haldið það.
Eftirlætispóinn?
Besta skáldið?
Mesti laumupúkinn?
Pói ársins?
Mesti sjentilmaðurinn (sem mér finnst merkilegra en kynþokkafyllsti gestapóinn)?
Mesta daman?
Orðheppnasti Póinn?
Mesta krúttið?
Besti nýliðinn?
Frumlegasti Póinn?
Mesti drykkjurúturinn?
Bestur í stafsetningu?
Mest saknað?
Bara svona til að nefna nokkra mögulega flokka Brosir
Mesti nýliðaskelfirinn ?
Það þarf þó að passa að hafa eigi alltof marga flokka en komnar eru margar góðar hugmyndir.
Mér lýst ágætlega á þetta.
Þá missi ég ekki titilinn sem kynþokkafyllsti gestapóinn frá því í fyrra.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Svo mætti líka bæta við Mesti titlasafnarinn (í svona kosningum). Þar koma einungis tveir Gestapóar til greina Ljómar upp.