Sér Uppa froðufellandi af ölvun, vera að ofsækja Herbjörn greyið sem ekkert illt hefur af sér gert
Forðar sér í snatri
Dæsir mæðulega og sest út í horn
Dú ðe búgalú!
Er enginn BLÁR þráður ?
Það held ég að hljóti að vera... en hann er ekki hér!
Auðvitað er bláþráður!
(Þess ber að geta að þráður þessi hét einmitt upphaflega Á bláþræði! - en hið nýja nafn hans á eiginlega enn betur við)
Það vantar gult á þessa síðu.
Getið þið ekki hundskast til að halda ykkur á ykkar þráðum?! Það er nú ekki gustuk að eyðileggja þetta fyrir okkur sárafáu rauðu hræðunum.
Ég var nú bara rétt að líta við til að benda á bláa þráðinn ...
Ég skal ekkert trufla frekar, sko.
Pírir annað augað og horfir stingandi augnaráði á Þarfa
Ha? Hvað?
Lokar Þarfa inni í skáp
Ef það er svona mikið rautt og blátt á einni síðu er hætt við hún verði fjólublá.
Bætir gulu á síðuna