Þetta lítur nokkuð út, þó er æskilegt að hafa forseta-, konungs- og keisarahallir við torgið. Að sjálfsögðu eingöngu í táknrænum tilgangi þar að af öryggisástæðum verður raunverulegt aðsetur eigenda hallanna annarsstaðar.
Heldur finnast oss hinsvegar götur þær er liggja að torginu þröngar. Er og eigi laust við að þær sjeu nokkuð krókóttar. Það er algjört skilyrði að á öll svona torg sje mjög fljótt hægt að koma miklum fjölda skriðdreka; torgið sjálft hentar vel fyrir skriðdreka til að athafna sig á og uppfyllir þar með mikilvægasta skilyrðið er svona torg þurfa að uppfylla. Vandamálið er að koma skriðdrekunum þangað.
Hérna vantar líka eitthvað svona götulíf
Ákveður að leika styttu og stendur grafkjurr og þegjandi tímunum saman
Hendir peningi í hatt Óskars og bíður eftir að hann hreyfi sig
Misskilur Óskar, heldur að hann standi grafkyrr í mótmælaskyni og sendir því nokkra skriðdreka út á torgið
Forðar sér á harðahlaupum og aldrei hefur stytta sést hreyfa sig með jafn tignarlega íþróttamannslegum hreyfingum, sem þó eru eingöngu uppsprotnar úr ótta
Spreyjar með grænni skipamálingu 'DÚLLUBOSSAKRÚTTUPÚTT' á styttuna af forsetanum
Sendir blindan Færeying til að þrífa torgið Hann má ekki líta dýrðina augum. Skítt með það þó hann þrífi illa, við hengjum hann þá bara.
Hvurslags - læti eru þetta?
Hér eru fínustu styttur bendir á gullslegna Enter-hnappinn og brjóstmyndina af Znata, afþreying bendir á útigangsmennina og veitingar spýtir tyggiggiggúmmíklessu á torgið.
Ef þú vilt endilega láta keyra yfir þig væri máske best að tala við forsetann.
Ljómar upp og sest á rónabekkinn
Hei, þú þarna gullkall! Áttu þúsundkall?
Mér finnst nú vanta nokkur veitingahús hérna við torgið. Helst svona veitingahús sem bjóða uppá góðar baunakássur! Sleikir út um
Flaggar einhverju, (veit ei hvort til er, eða hvernig Baggalútíski ríkisfáninn lítur út), í hálfa stöng á opinberri ríkisfánastöng Baggalútíu, (þessari sem stendur fyrir framan gyllta enterhnappinn), í tilefni af rafmæli Úlfamannsins
Hann er til sko. Ætti að vera einhverstaðar í sorpminjasafninu.
Dregur niður stórrósóttu síðbrækurnar sínar og flaggar með ríkisfánanum
Gaman að fáninn okkar er að lang stærstu leiti blár. Og ekki vottur af grænum í honum heldur! Glæsilegt.
Ljómar upp og hæ fævar Jarma
Eingvernveginn fannst mér það nú ekkert nema sjálssagt, en samt sem áður einstaklega gleðilegt að draga hann upp úr sorpmynjasafninu.
Gaman að fáninn okkar er að lang stærstu leiti blár. Og ekki vottur af grænum í honum heldur! Glæsilegt.
Það sem mestu skiptir er að hann er gulur. En einnig er hann blár líkt og kóbalt og friðar því alla aðila.
Ég held að það sé ákveðin ástæða fyrir því að hann var flestum gleymdur og grafinn.Glottir eins og fífl