Wassup nigga?
Og svo er oft betra að hafa innlegg hér á þræðinum, í stað þess að hafa þau hér á þráðnum. Starir þegjandi út í loftið
Þið eruð nú meiri andskotans dramadrottningarnar! Og þá er ég svo sannarlega ekki að tala um Júlíu vora!
Mér finnst indæll og afar skemmtilegur þráður fram að þessu. Verður fínt að fá stafasúpu með málfarsbollunum.
Iðar af tilhlökkun
Veltir því fyrir sér hvort krossgata ætli að fá sér súpuna með bollum eða í bolla
Ég var (aldrei þessu vant) að hlusta á bylgjuna rétt í þessu, og er alveg bit. Það var verið að tala við stelpu/konu, veit ekki um hvað því ég var eiginlega ekki að hlusta. En ég sperrti eyrun þegar hún sagði: Við hlökkum til...
Mikið gladdi þetta mig. Sérstaklega vegna þess að mér skyldist að hún væri af höfuðborgarsvæðinu, og hún talaði að öðru leiti eins og venjulegt fólk...
Súg hlakki til.
Texi þó!
Ég hélt að súg væri nefnifall? Súg hlakkar til..
Hugsar málið frá fleiri hliðum og kemst að því að þetta er rétt hjá Texa Ljómar upp
Ég heyrði einhvern mann fjalla um baráttu gegn kynsjúkdómum í einhverju Afríkuríki. Ég taldi víst að hann hefði mismælt sig þegar hann sagði að barnadauðinn þar þyrfti að batna. Ónei! Stuttu síðar bætti hann um betur og sagði að það væri bráðnauðsynlegt að bæta barnadauðann. Ég fullyrði að þessi mannandskoti sé stórhættulegur.
Kannski er um að kenna hinum stórkostlegu náttúruhamförum í Kálfhorníu?
Barnadauðinn að batna!?! Hverslags óhemju vitleysisgangur er í fólki? Það sannar sig enn og aftur að langskólaganga er alls ekki það sama og menntun!
Ég verð eiginlega að fá smá útrás hérna.
Ég er búin að vera að fá send í pósti svör við ritgerðaspurningum frá samnemendum mínum í einu faginu, en kennarinn okkar hvatti okkur til að hjálpast að að svara þeim (Við erum sumsé búin að fá spurningarnar sem koma á prófinu upp gefnar)
Það segir sig þá sjálft að allt fólkið sem sendir mér þessi svör er í háskóla - og þar sem að þessi áfangi er ekki í boði á fyrsta ári, þá er þetta allt nemendur sem stóðust síu fyrsta ársins.
Engu að síður er ég búin að vera að fá alveg fáránlegar stafsetninga- og málfarsvillur, sumar sem gera mig alveg kjaftstopp.
Tvær þeirra, sem mér fannst hvað verstar, voru alveg út í hött. Það er eins og manneskjurnar hafi aldrei tjáð sig í skrifuðu máli, aðeins töluðu, og séu að reyna að setja orð inn í setningarnar sem gætu mögulega hljómað rétt.
Hérna eru villurnar:
Í stað þess að skrifa "...að fyrst þær fundu ekki fyrir mun á.."
Þá var skrifað: "...að vist þær fundu ekki fyrir mun á..."
Í stað þess að skrifa "...gerir fólki svo ennþá auðveldara fyrir..."
Þá var skrifað: "...gerir fólki svo ennú auðveldara fyrir ...
Vist? Eins og "víst"? Ertu ekki að grínast?
Ennú? Er það orð?
Ég bara á ekki til aukatekið orð. Þetta er háskólamenntað fólk!
Ég vona að einhver rasskelli það.
Spáðu i þessu, svo er þetta lið að fara að kenna öðru fólki eða verða því fyrirmyndir, ekki skrýtið að allt er að fara til fjandans.
Fyrri villan er auðvitað fáránleg. Sú seinni er hinsvegar sjerkennileg því vjer sjáum ei betur en orðalagið þar sje sænskusletta. Ännu bättre þýðir t.d. enn[þá] betra.
Fyrri villan er auðvitað fáránleg. Sú seinni er hinsvegar sjerkennileg því vjer sjáum ei betur en orðalagið þar sje sænskusletta. „Ännu bättre“ þýðir t.d. „enn[þá] betra“.
kiknar í hnjáliðunum Ó Vlad.
Þetta eru bara fordómar ég sé ekkert að þessu.
skref 1 komið.
Þetta eru bara fordómar ég sé ekkert að þessu.
skref 1 komið.
Fordómar gagnvart háskólanemum á öðru ári þá.Klórar sér í höfðinu
Fyrri villan er auðvitað fáránleg. Sú seinni er hinsvegar sjerkennileg því vjer sjáum ei betur en orðalagið þar sje sænskusletta. Ännu bättre þýðir t.d. enn[þá] betra.
Þess má geta að viðkomandi sem gerði fyrri villuna mína var stoðkennarinn minn í 2 ef ekki 3 fögum.