Komið þið öll sæl og blessuð, ég heiti Glúmur Angan og ég er eineyrungur.
Það gleður mig að sjá svona mörg andlit og segi því þennan fyrsta fund Mónó settan.
Verið óhrædd við að kynna ykkur og miðla af reynslu ykkar.
Ég vil brjóta ísinn með því að taka fram að það tók mig langan tíma að taka það í sátt að ég væri í raun eineyrungur - en þegar mér varð ljóst að ég væri örveyrður í þokkabót var mér öllum lokið. Það er von mín að með Mónó getum við lært að lifa með fötlun okkar og haldið hnarreist framávið.
Ég heiti Texi Everto og ég er eineyrungur.
Ég vissi það ekki fyrr en þú bentir mér á það en ég er líka örveyrður, alveg eins og þú. Brestur í óstöðvandi grát
Svo mun ég ALDREI geta fengið mér sólgleraugu! Grenjar og hrín og togar hattinn niður fyrir augu
Til að mynda er alveg ómögulegt að hlusta á Led Zeppelin. Annað hvort verður maður að njóta hinnar gríðarsterku söngraddar Robert Plants eða gítarfimi Jimmy Page - en ekki beggja í einu! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Heyrðu hvurslags, ég sé að þú ert með gleraugu! Og þau eru ekki einu sinni tilfinnanlega skökk. Hvernig festirðu vinstri arminn á gleraugunum svo að vel sé?
Ég heiti krossgata og er örveyrður eineyrungur. Það vita færri að ég er fjarsýn, en get ekki notað gleraugu og verð því að nota linsur.
Ég er með lonníettur líkt og Herbjörn. Stekkur hæð sína
Ég heiti Ívar Sívertsen og er eineyrungur
Afsakið er það hér sem fundur heyrnarskertra Einseyringa er haldinn?
Ég heiti Þarfagreinir og er eineyrungur. Ég get þó huggað mig við að ég er ekki örveyrður.
Grætur fögrum tárum yfir félagskapnum
Tárast líka Maður getur einu sinni ekki huggað sig við að vera rétteyrður...
Ég hef stöðugar áhyggjur af því að snúa örugglega eyraða vanganum að fólki. Mér líður því illa í margmenni og stend þá oftast út við vegg.
Tvíeyrast um svæðið og kveikir á margóma náttúruhljóðatónlistLæðist út
Tvíeyrast um svæðið og kveikir á margóma náttúruhljóðatónlistLæðist út
Þú ert hjartalaus tuskudúkka! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég er reyndar búinn að vera með einhverja óútskýranlega hellu fyrir hægra eyranu og heyri því bara í mónó eins og þið, telst það með?
Kemur inn á þráðinn og blakar báðum eyrunum, hleypur út.
Ek er fjölfruma eineyrungur og er stoltur af því! Lítur stoltur út í loftið