Ég hef hingað til ekki kippt mér upp við það sem menn kalla hnattræn hlýnun. Skelfing náði þó á mér tökum þegar ég las um skort á búlgörskum gleðikonum. Hershöfðingjar eru ein stressaðasta starfsstétt veraldar, það er ekkert leyndarmál að við þurfum á sérstakri þjónustu búlgarska kvenna að halda. Nú get ég ekki fundið eina einustu því þær eru allar horfnar til fjalla!
Brestur í óstöðvandi grát
Þetta er hið athyglisverðasta mál og verðum vjer að játa á oss þá höfuðsynd að hafa eigi hugað út í þessa hlið málsins sem þó er svo augljós sje skynsemi og rökhyggju beitt á skarpskyggnan hátt. Er ljóst að þetta snertir mjög hagsmuni baggalútíska heimsveldisins þar eð fá ríki eiga jafn mikið undir árangursríkum hernaði og einmitt Baggalútía.
Eigi er útlitið þó alsvart þar eð ljóst er að stefna baggalútískra stjórnvalda um nýtingu kóbalts og plútóníums gerir vandamálið ívið minna en ella væri (þó það sje reyndar óvart). Er og eigi óhugsandi að vandamál þetta bitni eitthvað á einhverjum hinna fjölmörgu óvina baggalútíska heimsveldisins.
Hægan nú...vilduð þið ekki hlýnun?
Breytir fasaumhverfilsstillingunni á veðurmaskínunni frá hnatthlýnun, í litla ísöld
Óttast að alvarlegur misskilningur hafi orðið
STOOOOOOOOOOPPPP !
Vjer viljum hlýnun. Það þarf hinsvegar að stjórna staðsetningu hennar mjög nákvæmlega.
Staðsetning er lykilatriði í orrustu. Kosturinn við að velja staðsetninguna er að þú ert hvíldur í orrustu og óvinurinn er úrvinda, jafnan gefst tóm fyrir Martini. Meira má lesa um þetta í nýútkominni bók minni í kaflanum Tóm og fullnusta. Bókin ber heitið: Hvernig ég sigraði heiminn í fjórum einföldum skrefum (og hvernig þú getur gert það líka!) og er hægt að nálgast í öllum skárri bókaverslunum.
Jæja jæja, óttalegt ráðaleysi er þetta í ykkur.
Stillir á hálfvolga hlýnun
Ég hlakka til að lesa þessa nýju bók þína Sun. Ég hafði mjög gaman að bók þinni um 79 strategíur við að smala íslenskum sauðkindum.
Vel að merkja, í eftirmála þeirrar bókar talaði ég um varrollur og að það væri aðeins tímaspursmál hvenær stökkbreyting yrði í erfðamengi sauðkinda. Nú nýlega gerðist það svo á Nýja Sjálandi og um það hefur verið gerð heimildarmynd sem heitir Svörtu sauðirnir (á frummáli, Black Sheep). Þar sem útgefandinn minn er hreðubálkur hinn mesti misfórst þýðing bókarinnar og kemur hún ekki út á ensku fyrr en á næsta ári! Þá verður sjálfsagt um seinan fyrir þá þarna hinu meginn.
Um seinan? Af hverju?
Varðandi sauði verðum vjer að minna á flugsauði þá er Dr. Zoidberg átti. Það voru afbragðs hernaðartæki Ljómar upp.
Hvernig beislar maður slíkan fák? Kannski ég hafi misskilið eitthvað, eru þeir kannski notaðir sem flugskeyti?
Starir þegjandi út í loftið
Fjárans. Ég les alltaf titilinn á þessum þræði sem Hóruhald í Baggalútíu... Ég veit samt ekki til þess að hér séu nokkrar hórur uppi á yfirborðinu enda lítið fyrir þær að gera í þessari útópíu þar sem andinn ræður algerlega yfir efninu. Nema náttúrulega athyglishórur en þær eru yfirleitt sauðmeinlausar greyin (öfugt við flugsauðina sem eru það væntanlega ekki og flugsauðmeinlaus hlýtur þá að þýða að einhver sé stórhættulegur, er það ekki annars Vlad?!).
Já vá... ég las líka Baggalútíu.... ferlega mislestravænn titill.
Hvernig væri annars að hafa einfaldlega öll svæði þar sem hætta er á ofhitnun yfirbyggð og leiða svo umframhitann út í geiminn með innrauðu ljósi, speglum og u.þ.b. 100 km háum lofttæmdum hólkum ?
Ég las: Brjóstahaldarar að fornu og nýju fyrir aftan vitann
Ég las: Brjóstahaldarar að fornu og nýju fyrir aftan vitann
Ég veit ekki hvað Carrie segir við því. Það er nú þannig snyrtimennskan í kringum vitann hjá henni að engin dæmi eru slíkt. Þessi viti sem þú talar um getur varla verið í baggalútíu.
Það er nú svo!
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri