— GESTAPÓ —
Umræða um hugsanlega árshátíð 2007
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3 ... 23, 24, 25  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 28/9/07 10:36

Jæja, árshátíðarumræðan hefur poppað upp á nokkrum þráðum, eigum við ekki bara að taka þetta föstum tökum og ræða þetta mál?!

Aðalspurningarnar eru þessar:

a) Er almennur áhugi fyrir því að halda árshátíð?
b) Hafa einhverjir góðir gestapóar sértækan áhuga á því að vera í árshátíðarnefnd?

Og já, kannski best að taka það fram að a) ég hef áhuga á að halda árshátíð og b) ég var í nefnd í fyrra og er til í að vera nýrri nefnd innan handar með hugmyndir og fleira en ég hef lítinn tíma til að sinna almennri skipulagningu.

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 28/9/07 10:44

Ég hef áhuga á árshátíð og áhuga á að vera í árshátíðarnefnd en ég hef því miður hreint engan tíma til að standa í skipulagningu... ég get mætt og skemmt mér eina kvöldstund og hugsanlega verið með eitthvað smá skemmtiatriði. Svo er það að ef ég kem að einhverri skipulagningu þá klúðrast það alltaf.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/9/07 10:46

Ég hef áhuga á árshátíð, og hugsanlega að sjá um að skipuleggja hana. Legg ég þá til að í þetta skipti verði ekki matur. Það var mjög fínt að hafa mat í fyrra, en hins vegar mikið umstang og kostnaður við það.

Koma Gestapóar hvort eð er ekki aðallega á svona viðburði til að drekka áfengi? ‹Glottir eins og fífl›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 28/9/07 10:47

Spurning um að kanna hversu margir vilji fara út að borða saman og hittast svo allir á árshátíð.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Andþór 28/9/07 11:00

Maður er nú nýgræðingur hér en ég myndi mæta á árshátíð.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tina St.Sebastian 28/9/07 11:08

Ég vil ássháttíð!

Það sem vantar er reddingafólk með kontakta. Hver á frænda sem á stóran bílskúr?

- Passív-aggressívur erkióvinur ritstjórnarmeðlima hverra nöfn hefjast á 'E' - •  Verndari alls karlkyns- Biskup yfir westurhluta Íslands- Umsjónarmaður, hönnuður, verktaki og æðsta yfirvald í málefnum Torgs Hinnar Heilögu Ritstjórnar-
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 28/9/07 11:14

Mig langar á Árshátíð Hún þarf ekkert að vera fín baraPizzur og bjór nægir mér og svo að sjálfsögð einhver frumsamin skemmtiatriði og smá teningaborð fyrir okkur Herbjörn.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 28/9/07 11:18

Ég er alveg til í árshátíð. Panta snittur og sérrí, vera með afskaplega dönnuð gamanmál, bjóða upp á konfekt og kavíar, síðan verður klykkt út með gömlu dönsunum og harmonnikkufélaginu alveg langt frameftir. Jafnvel til klukkan 9 á laugardagskvöldi ef mikil stemmning er í mannskapnum. ‹Ljómar upp og fær sér ristað brauð með sultu›

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Huxi 28/9/07 11:23

Árshátíð!? ‹Fölnar upp› Þýðir það að maður þarf að horfast í augu við aðra Gestpóa eftir að maður er búinn að gera sig að fífli hér í Baggalútíu? ‹Fær nett kvíðakast og skríður bak við skáp.›

Misheppnaður valdaræningi * Efnilegasti nýliði No: 1 * Doktor í fáfræði * Faðir Gestapóa * Frændi Vímusar, Madam Escoffier og Herbjarnar Hafralóns * Forstöðumaður Veðurfarsstofnunar Baggalútíska Heimsveldisins * Forstjóri PRESSECPOL * Grænn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 28/9/07 11:25

Segðu!

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 28/9/07 11:36

Verður hún fyrir 15. desember? Því þá verð ég ekki kominn heim! ‹brestur í óstöðvandi grát›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 28/9/07 11:36

Verður hagyrðingamót?

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 28/9/07 11:43

Skabbi skrumari mælti:

Verður hagyrðingamót?

Þá mætum við örugglega! Er þaggi? ‹Ljómar vongóður upp›

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 28/9/07 11:46

B. Ewing mælti:

Ég er alveg til í árshátíð. Panta snittur og sérrí, vera með afskaplega dönnuð gamanmál, bjóða upp á konfekt og kavíar, síðan verður klykkt út með gömlu dönsunum og harmonnikkufélaginu alveg langt frameftir. Jafnvel til klukkan 9 á laugardagskvöldi ef mikil stemmning er í mannskapnum. ‹Ljómar upp og fær sér ristað brauð með sultu›

Og byrja hvenær? Á fimmtudagskvöldinu? ‹Ljómar upp›[/s]

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 28/9/07 11:49

Huxi mælti:

Árshátíð!? ‹Fölnar upp› Þýðir það að maður þarf að horfast í augu við aðra Gestpóa eftir að maður er búinn að gera sig að fífli hér í Baggalútíu? ‹Fær nett kvíðakast og skríður bak við skáp.›

Regína mælti:

Segðu!

Nei, þetta er allt í lagi. Árshátíðin verður haldin í raunheimum sem eru auðvitað ekki til svo það þarf enginn að horfa í augun á neinum og allir geta haldið áfram að vera glaðir á Gestapó!

Billi bilaði mælti:

Skabbi skrumari mælti:

Verður hagyrðingamót?

Þá mætum við örugglega! Er þaggi? ‹Ljómar vongóður upp›

Af hverju bjóðið þið ykkur bara ekki fram í nefnd, þá getið þið gert það sem þið viljið!

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 28/9/07 12:12

Ég hef mikinn áhuga á að mæta á svona skemmtun. En ég hef hvorki tíma né hæfileika til að skipuleggja neitt og set því ekki fram neinar kröfur heldur.

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Huxi 28/9/07 12:16

Anna Panna mælti:

Huxi mælti:

Árshátíð!? ‹Fölnar upp› Þýðir það að maður þarf að horfast í augu við aðra Gestpóa eftir að maður er búinn að gera sig að fífli hér í Baggalútíu? ‹Fær nett kvíðakast og skríður bak við skáp.›

Regína mælti:

Segðu!

Nei, þetta er allt í lagi. Árshátíðin verður haldin í raunheimum sem eru auðvitað ekki til svo það þarf enginn að horfa í augun á neinum og allir geta haldið áfram að vera glaðir á Gestapó!

‹Rekur nefið undan skápnum› Þetta er of flókið fyrir mig. Hvernig er hægt að halda árshátíð á stað sem ekki er til?

Misheppnaður valdaræningi * Efnilegasti nýliði No: 1 * Doktor í fáfræði * Faðir Gestapóa * Frændi Vímusar, Madam Escoffier og Herbjarnar Hafralóns * Forstöðumaður Veðurfarsstofnunar Baggalútíska Heimsveldisins * Forstjóri PRESSECPOL * Grænn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tumi Tígur 28/9/07 13:04

a) Já!

b) Ég gef ekki kost á mér í nefnd sökum almenns tímaskorts tilkomnum af mikilli vinnu en ég ætla samt að setja fram kröfu á þá sem verða í nefnd.

Að mínu mati er það alger lágmarkskrafa að boðið verði upp á ákavíti á árshátíð Baggalúts.

Sonur andskotans · Skógardrísill · Prins Frumskógarins · Tígull
LOKAÐ
     1, 2, 3 ... 23, 24, 25  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: