Verði haldin árshátíð á næstunni mótmælum vjer því harðlega að það fari fram kosningar nema þær fari alveg eins og í fyrra. Oss er kunnugt um fleiri í þessum þræði sem eru örugglega á sama máli Stofnar kosningaskrifstofu og borgar mútur í allar áttir.
Vjer tökum síðan undir að Andþór og Huxi er afar efnilegir nýliðar.
Múrinn þarf að vera úlfamannaheldur.
Verði haldin árshátíð á næstunni mótmælum vjer því harðlega að það fari fram kosningar nema þær fari alveg eins og í fyrra. Oss er kunnugt um fleiri í þessum þræði sem eru örugglega á sama máli Stofnar kosningaskrifstofu og borgar mútur í allar áttir.
Vjer tökum síðan undir að Andþór og Huxi er afar efnilegir nýliðar.
Múrinn þarf að vera úlfamannaheldur.
Algjörlega sammála!
Hjálpar til á kosningaskrifstofunni
Ruslar til á kosningaskrifstofunni og krotar KJÓSIÐ TEXA á alla pappíra
Skiptir um skoðun og krotar KJÓSIÐ EKKI TEXA út um allt
Bætir við: KJÓSIÐ TIGRU OG VLAD á alla pappíra
Þar sem ek hef reynslu af svona múrmálum skal ek leggja fram mikla aðstoð mína.
Þurreys allar kóbaltnáumur Papúa, Túrkmenistan, Rússlands og Japan og sendir til byggingarumboðsaðila múrsins
Fær Halla og Ladda til að skemmta vinnumönnunum
Lætur hálshöggva íslenskuráðgjafa sinn
Hvíslar að Stalín Þú átt að segja þurreys.
Mér finnst að Tína ætti að byggja múrinn, hún gæti smíðað hann úr mál og stafsteningarvillum héðan af gestapó.
Múrin yrði fyrir vikið algerlega óklífandi og óyfirfarndi auk þess sem innleggin á gestapó litu miklu betur út.Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Hann er bara að bæta við byggingarefnið.
Kosningar? Um hvað? Til hvurs? Hverjum þarf að múta? Snýst í hringi eins og ölvuð ballerína Ég þarf greinilega að fara að snyrta á mér skeggið og lokka Andþór til Papúa Nýju Gíneu að leita að kóbalti fyrir mig.. Hann verður varla kosinn á meðan.
Hux hux
Mikið afskaplega er ég lukkulegur að þessari hugmynd var ekki tekið allt of opnum örmum. Heldur myndaðist um hana orðagjálfur og óánægjuraddir sem gerðu það að verkum að ég komst hér inn fyrir með hressandi sundi í lýsislauginni í Innflytjandahliðinu í stað þess að þurfa að klífa ókleifan vegg. Sem vissulega hefði reynst erfitt í meira lagi. Ég var að vísu næstum því étinn af Tígru, en mér sýnist hún nú inn við beinið vera vænsta grey, á meðan hún fær nóg af Færeyingum.
Ég er ekkert grey.
Frussar
Hey, hin orðin sem komu mér til hugar voru krútt og dúlla. Ég bjóst við því að þér þætti illskást að vera grey. Það er nefnilega eitthvað svo dúllulega krúttlegt.
Veltir fyrir sér hvort Oskar sé þá rassabossadúlla
Viljiði hætta að dúllubossast svona greyin mín.Glottir eins og fífl
Hvernig er það, á ekki að fara að byrja á þessum múr. Hvernig er það liggja ekki útboðsgön og þ.h. frammi einhverstaðar. Gáir fram
Mokar Óskari í hjólbörur eins og óður köttur