Biturt hex óskar eftir að fá að gerast boðflenna í matarboð á laugardag . Uppl í afgreiðslu.
Ég veit að það verður fullt af fólki á McDonalds, Burger King, Pizza Hut... en hvort það verða Gestapóar skal ósagt látið...
Glottir eins og fífl
Verður þú ekki þar einsog vanalega að éta uppúr ruslinu þarna vitleysingurinn þinnGlottir eins og fífl
Óska eftir að ráða leikara fyrir laugardagkvöldið. Engin laun í boði en áfengi getur fylgt.
Æskilegt að viðkomandi sé sköllóttur, ekki skilyrði (ég get bjargað því atriði með litlum tilkostnaði)
Ekki er verra ef viðkomandi hefur gulbrúnan húlit og sé mjög töff.
Verður að hafa illilegt augnaráð.
Óska eftir lækningu strax við kvefi og slappleika. Má ekki vera mikið meira en sólarhring að virka
Óska eftir lækningu strax við kvefi og slappleika. Má ekki vera mikið meira en sólarhring að virka
Ógrynnin öll af heitum drykkjum, sólhattur , lýsi og vítamín . Takist eftir þörfum í óhófi og svo náttúrlega áfengi snemma dags og seint að kveldi, heit böð og hlý föt.
HÆTTU ÞESSUM EYMINGJASKAP, SKELLTU Í ÞIG JACK DANIELS OG HÆTTU AÐ SPÁ Í ÞESSU !!!
Ég mæli með lýsisblönduðu Ákavíti... allra meina bót..
Uppskrift:
Tvær matskeiðar í hvert glas af Ákavíti (lýsið flýtur ofaná og því er best að skella glasinu öllu í sig í einum rykk)... xT
Óska eftir lækningu strax við kvefi og slappleika. Má ekki vera mikið meira en sólarhring að virka
Ógrynnin öll af heitum drykkjum, sólhattur , lýsi og vítamín . Takist eftir þörfum í óhófi og svo náttúrlega áfengi snemma dags og seint að kveldi, heit böð og hlý föt.
Ég mæli samt ekki með því að taka mikið inn af verkjalyfjum, hóstasaft og hálstöflum. Það er svo mikið sorbitol í þessu að þú færð húrrandi drullu.
Ríkisstyrkt heilbrigðisstofnun í Norðvesturkjördæmi leitar að góðum Plankalkülforritara með a.m.k. 20 ára starfsreynslu. Viðkomandi þarf auk þess að vera fullkomlega fær um að tjá sig á a.m.k. dönsku, þýsku, frönsku og georgísku. Góð laun í boði fyrir réttan mann.
Hæfilegur skammtur af prófkvíða óskast í skiptum fyrir rólyndi og syfju.
Geispar og lokar námsbókunum
Hæfilegur skammtur af prófkvíða óskast í skiptum fyrir rólyndi og syfju.
Geispar og lokar námsbókunum
Ég á smá paranoju í poka ef það hjálpar
Hæfilegur skammtur af prófkvíða óskast í skiptum fyrir rólyndi og syfju.
Geispar og lokar námsbókunum
Ég á smá paranoju í poka ef það hjálpar
Þiggur paranojuna og neitar að trúa orði af því sem stendur í bókunum
Hæfilegur skammtur af prófkvíða óskast í skiptum fyrir rólyndi og syfju.
Geispar og lokar námsbókunum
Ég hélt að þú ættir nógan prófakvíða, ekki notðiru hann á meðan ég þekkti þig.
Hæfilegur skammtur af prófkvíða óskast í skiptum fyrir rólyndi og syfju.
Geispar og lokar námsbókunum
Ég hélt að þú ættir nógan prófakvíða, ekki notðiru hann á meðan ég þekkti þig.
Ástandið er svipað núna. Þekkirðu mig ekki lengur? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Til þeirra, sem eru í prófum:
Hef til sölu alls konar prófskírteini, sem ég hef ekki lengur þörf fyrir. Sanngjarnt verð.
Til þeirra, sem eru í prófum:
Hef til sölu alls konar prófskírteini, sem ég hef ekki lengur þörf fyrir. Sanngjarnt verð.
Hvurslags skírteini eru þetta? Tekur klinkið úr vasanum og byrjar að telja
Alls konar, t.d. barnapróf, unglingapróf, gagnfræðapróf, hjólbörupróf, lyftarapróf, meirapróf, rútupróf og svo einhverjar framhaldsskólagráður, sem skipta minna máli.
Hjólbörupróf? Hvað þarf til að ná því?