Djö...
Til hvers í suður?
Ég myndi giska á ákveðnar götur í suðri.
Starir þegjandi út í loftið
Óska eftir raunamæddum Bagglýtingum til útflutnings.
Ætlunin er að flytja slatta af þeim í 3-4 gámum til Raunheima. Bið ykkur Bagglýtingar góðir að hafa augun hjá ykkur. Greiði í réttu hlutfalli við raunir þeirra, þ.e.a.s. raunverð og annast alla pappírsvinnu o.þ.h.
Með þessu er ætlunin að gera Baggalútíu að vistvænni stað fyrir hvers kyns gleðipinna.
Hafið samband við útflytjendaskrifstofu vora á skrifstofutíma eða leggið inn skriflegt erindi á póststöð Baggalútíu.
Ekkert! Ekkert!
Vorum ekki að fá neina sendingu af nýjum vörum. Engar vörur fyrir alla fjölskylduna. Hreint ekki neitt, ekki einu sinni baun í bala.
-TómaBúðin
Þessi vefur stendur ekki varla undir sér. Sponsorarnir eru farnir að ókyrrast. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Auglýsir smá
átti svona græju en seldi til Vestmannaeyja.
Hvað vilja Vestmannaeyingar gera með riffil sem skýtur til suðurs? Eru þeir kannski nýja heimavarnarliðið? Klórar sér í höfðinu
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég hélt að við værum heimavarnarliðið?
Fer og skoðar heimavarnarlistann aftur
Nokkrir aukaklukkutímar óskast til afnota á laugardaginn. Get boðið ónotaðan sunnudag í staðinn. A.v.á
Biturt hex óskar eftir að fá að gerast boðflenna í matarboð á laugardag . Uppl í afgreiðslu.
Nokkrir aukaklukkutímar óskast til afnota á laugardaginn. Get boðið ónotaðan sunnudag í staðinn. A.v.á
Ætti þetta ekki að vera ónýtan sunnudag?
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Nokkrir aukaklukkutímar óskast til afnota á laugardaginn. Get boðið ónotaðan sunnudag í staðinn. A.v.á
Ætti þetta ekki að vera ónýtan sunnudag?
Jú að sjálfsögðu! Það er eins gott að hafa góðan prófarkarlesara í smáauglýsingunum!
Góð, alhliða panna óskast.
Þarf að vera ódælduð og ekki með teflonhúð eða þykkan botn. (Anna kemur því ekki til greina).
Óska eftir staðgengli til að mæta á árshátíðina fyrir femínista á laugardaginn. Viðkomandi þarf að vera drykkfeldur og illa innrættur
Góð, alhliða panna óskast.
Þarf að vera ódælduð og ekki með teflonhúð eða þykkan botn. (Anna kemur því ekki til greina).
Djöfuls, ég vissi að ég hefði ekki átt að láta teflonhúða mig.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Andskotans Blackberry fæst gefins, gegn því að vera sópaður upp á bílastæðinu í vinnunni.
Góð viðgerðar og lím kunnátta nauðsynleg.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Biturt hex óskar eftir að fá að gerast boðflenna í matarboð á laugardag . Uppl í afgreiðslu.
Ég veit að það verður fullt af fólki á McDonalds, Burger King, Pizza Hut... en hvort það verða Gestapóar skal ósagt látið...
Glottir eins og fífl