Djöfullinn. Ég er kominn með kynsjúkdóm einhleypra. Sinaskeiðabólgu. Blótar herfilega og rífur hár sitt - með annari hendi
Þér var nær að nota ekki smokkinn.
Ætli það sje ekki rjett munað hjá oss að tveggja sexu pottrán árþúsundsins sje hið fullkomna tilefni til að gægjast hjer inn ? Sest niður
Ljómar upp
Leyfist mér að spyrja hæstvirtan forseta vorn hvað tveggja sexu pottrán árþúsundsins sé?
Hann náði 230 stiga potti í tveim sexum fyrir örstuttu síðan. Dáist að forsetanum
Og því telst það pottrán
A! Nú skil ég. Hafið þökk. Ég beitti einhverri áunninni lesblidnu [sic] á þetta og las pottjárn.
bíður spenntur eftir löngum pistli Günthers um notkun pottráns í fornum sögum og helstu tengingum við fornengilsaxnesku
Ég held að Kargur þurfi að sætta sig við að 'pottrán' er nýyrði.
Fjandinn. Ég sem sá fram á spennandi kvöld, lesandi um notkun pottráns í annálum, kirkjubókum og fornum kvæðum.
Ég held að Kargur þurfi að sætta sig við að 'pottrán' er nýyrði.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hefur pottum ekki verið rænt frá örófi alda? Undan regnbogum og hvað eina?
Ég held að Kargur þurfi að sætta sig við að 'pottrán' er nýyrði.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hefur pottum ekki verið rænt frá örófi alda? Undan regnbogum og hvað eina?
Hugsunin getur verið ævaforn, þó svo að akkúrat þessi móður á útþrykkingu hennar í orði hafi ekki verið reyndur fyrr, að minnsta kosti skv. orðabók háskólans.
dregur gamla góða eldhúsborðið fram og hitar kaffið, setur gúmmulaði og sætabrauð á bakka og býður einmama sálum að fá sér
Eins og er, þá er ég mjög einmanna og þarf að fá gott kaffi og með því.
Vonandi að þú sért með eitthvað dökk ristað og hnetuvínarbrauð með þvi.
Já elskan mín skellir fram pecanhnetuvínarbrauðinu og skellir senseó græjunni í gang, dillar bossanum óþarflega mikið á meðan
JÁ HALLÓ! Haldið þið ykkur þá í höllinni. Þetta er minn bitri staður.
kveikir sér í sígó og fær sér tvöfaldan vodka í redbull
læðist út og yfir í höllina, dregur Liminn með sér