Ljómar upp Það er víst einhver ægilega skemmtileg prinsessumynd í kvöld, og svo er tekknó í útvarpinu, getum við ekki bara horft á bæði? Fær sér te og kleinu.
Að horfa á útvarpið ? Er ekki venjulega hlustað á það ? Klórar sjer í höfðinu
Afi hlustaði alltaf á sjónvarpið, og það er víst hægt að horfa á útvarpið, sérstaklega þessi gömlu með miklu lesmáli framaná.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið Já í gamla daga var mikið lesmál utaná úbbartinu, kannski af því að það var innpakkað í dagböð svo það kæmi ekki ryk á það.Starir þegjandi út í loftið
Rifjar upp öll borgarnöfnin framan á gamla útvarpinu með tökkunum sem voru eins og tennur.
Pírir augun og reynir að hafa jafn góða sjón og áður Ljómar upp eins og útvarp sem er lengi að hitna
Pabbi á gamalt, stórt úvarp sem er nánast hætt að virka en það stendur samt í stofunni hjá honum og gegnir veigamiklu hlutverki sem stofustáss. Það er einmitt með fullt af tökkum á því og alls konar lesmál sem mér fannst alveg ótrúlega merkilegt þegar ég var yngri, ég sat oft og las útvarpið!