Frábært, ég er einmitt búin að vera á kúr líka, ég held samt að ég sé búin að skemma hann.Brestur í óstöðvandi grát 'eg byrjaði svo vel en svo féll ég í freistni.
Æjj, svona, svona. Hættu bara að éta þarna.
Færir kleinurnar og konfektið sín megin við borðið
Ljómar uppGóð hugmynd. Segðu mér, hvernig misstirðu heilt kíló á danska, verður maður ekki að borða heilt kíló af grasi á dag.
Þrjú reyndar.
Pússar á sér neglurnar sjálfumglöð á svip
horfir með aðdáun á Aulann og teygir sig í sérrýflöskuna
Hlammar sér í sæti og dæsir mæðulega
Æ, góðu réttið mér kleinurnar.
Hlammar sér inn á þráðinn en sér hvers kyns er og forðar sér hið snarasta til útlanda
Velkomin Tina okkar, réttir nýbakaðar kleinurnar
Kemur akandi á ÍsbílnumRjómaís, súkkulaðiís, pinnar og box
Er þetta nokkuð svona drama þráður?
Starir þegjandi út í loftið
Er þetta nokkuð svona drama þráður?
Starir þegjandi út í loftið
Er þetta ekki ama-þráður?
Skellir í sig einum bolla af svörtu rótsterku kaffi
Ég legg ekki meira á þig.
Sælar. Ég held að þessi þráður geti átt vel við mig.
Hlammar sér við borðið
Bankar uppá, hlaðinn af hinum aðskiljanlegustu plastboxum Voruð þér ekki að panta Tupperware kynningu? Huxar sér gott til glóðarinnar að veiða slúðursögur upp úr piparjúnkunum til síðari nota
Hver hefur efni á tupperver eins og verðlagið er orðið.
Herpir saman varirnar
Þetta er gæðavara á fínum greiðslukjörum. Uhu, blönk og bitur Eru vinkonur þínar ekki tilbúnar að skoða varninginn? Setur upp bílasalabros
Það er hægt að fá nærri því eins dollur í Bónus fyrir 1/4 af verðinu! Sýgur Cigil-vindilinn
Sko sjáðu baradregur fram kynstrin öll af misstórum dollum sem eru misfullar af afgöngum síðan einhverntíma og einhverntíma
Þetta fór illa, búið að fatta að ég fékk dolludraslið í BónusRoðnar og hökklast afturábak og er úr sögunni