ég er að velta fyrir mér aðgerð Þið skiljið svona útlitsbreytingu á gestapó.
hvað finnst ykkur?
Jah, þegar stórt er spurt... Þá spyr maður bara stærra. Á að yngja sig eilítið upp eða eldast með reisn? Skipta um lit ef til vill? Hvað hefurðu í huga?
ég verð ekki grænn.
ég er meira að hugsa um að finna mér meira sexý andlit svo að maður fái oftar að ríða.
Jaaaaaáá svoleiðis. Þá þarftu reyndar ekkert nýtt andlit, bara mæta á gestapóskar samkomur, jafnt utan sem innan landamæra Baggalútíu! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið (þ.e.a.s. með tilliti til þess hve mörg pör hafa hafið sína sambúð á Gestapó en ekki á þann hátt að Gestapóar séu almennt lauslátar druslur)
nei bara á gestapó.
þetta er ekki vandamál í hinum svokölluðu raunheimum sem þú vísar til án þess að tilvist þeirra sé sönnuð.
Samkomur innan landamæranna stangast nú ekkert á við þetta ósannaða raunheimalíf. En ef þú ert ákveðinn í þessu þá má ég til með að benda þér á að það er enn ekki of seint að skrá sig í Baggasveininn! Frábær staður til að prufukeyra nýtt andlit í þessum tilgangi!
Ég held að hver og einn verði að vega og meta fyrir sig sjálfan þegar að aðgerð kemur.
Ég held að hver og einn verði að vega og meta fyrir sig sjálfan þegar að aðgerð kemur.
ákvörðuninn er að sjálfsögðu mín, þetta er nú minn líkami.
málið er bara þetta að þegar einhver fær líkama þá fær hann væntanlega þann skásta sem er í boði þá stundina síðan líður tíminn og allir venjast líkamanum og maður sjálfur líka, en kannki er ég glæsilegur leikari lokaður inni í líkama perralegs country söngvara eða jafnverl útvarpsmanns eða stjórnmálamans.
Stundum líður mér þannig og það er ekki gott.
Mér finnst þú nú bara nokkuð sjarmerandi svona.
Vonar að Upprifinn breyti ekki
Mér hefur nú alltaf fundist ég líta betur út með hatt.
ég hef ákvðið að fara í umrædda aðgerð innan tíðar eða þegar Enter nennir að framkvæma hana, ég vil biðja sampóa mína að sýna skilning en mér hefur liðið eins og ég sé ekki með rétt andlit.
Kannski er þettta ímyndun í mér og ef svo er og mér líður en jafn illa og núna að aðgerð lokinni mun ég eflaust biðja Enter um að bakfæra aðgerðina. en ég á síður von á því.Starir þegjandi út í loftið
Fínt hjá þér. Mér hefur alltaf fundist þú frekar skuggalegur á núverandi vegabréfsmynd. M.ö.o. þetta getur varla versnað.Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Þú hlýtur að verða rauður.
Þú hlýtur að verða rauður.
Hrökklast aftur á bak og hrasar viðHoppaðuGrípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Urrar á Upprifinn Alltaf sami brandarakarlinn!