Sem bókasafnsfræði dropát bíð ég mig fram til að sjá um bóka og skjalasafnið í fjarveru Hexíu.
Komdu fagnandi Grágrímur. Kanntu á bláu silfurskotturnar?
Ég á reyndar enn eftir að finna bókasafnið eftir að fortíðin dúkkaði upp, en ef þú finnur það þá geturðu byrjað á að gefa bókasafnskettinum.
Stegglaus til útlanda? Og þig vantar eyðsluhugmyndir. Hver er eiginlega kellinginn á setrinu?Glottir eins og fífl
Ég geri mitt besta
Byrjar að undirbúa þaulskipulagða þráðabjörgunaraðgerð inni myrkustu skot gestapó
Stegglaus til útlanda? Og þig vantar eyðsluhugmyndir. Hver er eiginlega kellinginn á setrinu?Glottir eins og fífl
Nú, Íbbi auðvitað. Hann hlýtur að vera kellingin fyrst ég er húsbóndi á mínu heimili. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Annars er það ekkert leyndarmál að það er Ívar sem sér um eyðsluna, ég er hins vegar alltaf kölluð eyðslubremsan. Dæsir og verður enn einusinni hugsað til þess hvað hún er strákaleg í háttum
OK má kannski bjóða þér aðstoð . þú getur fengið annaðhvort konuna eða dóttur mína með þær kunna listina að eiða til fullnustu.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ha er Partý hjá herra Sívertsen?
Nei, Hexia var að banna mér það.
Ég ætla rétt að vona að Sívertsen-deTrix setrið standi enn þegar ég kem til baka.
Í þessum orðum felst að Ívar má ekki halda partý. Hins vegar má hann alveg fá fólk heim í spjall, það er önnur saga.
Hann verður bara að vera búinn að fjarlægja Geirfinn.
Leggur af stað í hafnarfjörð
Í hvoru húsinu búið þið ?Klórar sér í höfðinu
Hinu. skellir í lás
Þú gætir kanski komist að því hver stal í raun og verku kökuni úr krúsini í gær !!
Já þú segir nokkuð. Það hljóta að hafa verið einhverjir erlendir óvinir ríkisins... hverjir aðrir gætu látið sér detta í hug að stela kökum frá okkur svöngum Bagglýtingum?
Vjer leggjum til að þjer sáið fræjum innbyrðis úlfúðar og tortryggni í þessum sk. 'útlöndum' með undirróðursstarfsemi í þeim tilgangi að lokka óvini ríkisins fram úr sínum dimmu skúmaskotum. Þar með fást upplýsingar um aðsetur þeirra og hægt að eyða aðsetrum þeirra (líklega er um að ræða hundruð neðanjarðarbyrgja) með þessu:
Færir Hexiu nokkrar kjarnorkusprengjur
Á óvini ríkisins er komnir eru út úr skúmaskotum sínum ætti þetta síðan að duga vel:
Færir Hexiu 500 flugskeyti, 250 skriðdreka og 100 herþotur ásamt leynilegum aðgangi að myndum frá njósnagervihnöttum
Pakkar öllu saman í öryggishólfið í handtöskunni Úff, þetta er þungt. Er ekki nóg að ég dembi þessu bara á fjölfarinn stað... segjum Heathrow?
Nei reyndar ekki. Ég á ennþá eftir að glugga alvarlega í nokkrar galdraskræður, betra að vera búin að rifja þetta upp svo ég hafi mig ekki að fífli meðal kolleganna. Svo vantar mig líka góða tösku undir kústinn, því mér reiknast svo til að ég fari eitthvað um án þess að fljúga á milli staða. Þá er betra að vera bara með kústinn í góðum bakpoka.
Tekur sér stöðu fyrir utan Sívertsen DeTrix setrið með tvo kassa af stórum blútdósum
Kíkir á klukkuna
Fer Hexía ekki að fara ?
Opnar blút