Félagsrit albins fékk mig til að hugsa aðeins um svokallaða Raunheima... og fyrir vikið kom smá romsa frá mér um þá í orðabelg félagsritsins:
Raunheimatal fékk á sínum tíma sér svæði sem hefur verið endurvakið af ritstjórn... þannig að ég reikna með að það megi minnast á það þar... Það er hið svokallaða Efst á baugi... annars er ég sammála... raunheimar eru ekki til... og ef þeir væru til þá er ég ekki til... þar sem ég kannast ekki við raunheima nema af grínsíðum eins og mbl.is og fleirum sem gaman er að hlægja að...
Þar sem hliðið að raunheimum er Efst á baugi, þá væri kannske best að loka því svæði og reyna að bæla niður þennan ímyndaða heim... því hver vill vera með grín á svona góðum vef eins og Baggalút...
Þá vil ég spyrja ykkur gestir góðir hvort ekki væri rétt að loka alveg á þetta svæði... og rökin fyrir því eru eftirfarandi:
Í fyrsta lagi þá er rugl varla boðlegt á Gestapó... í öðru lagi, þá getur fólk farið á aðrar heimasíður ef það vill lifa í einhverjum ímynduðum heimi.... og í þriðja lagi, þá geta óharðnaðar sálir farið að halda að þessir raunheimar séu til, sem er náttúrulega slæmt... samanber hvarf Gvendar skrítna (fleiri hafa horfið og sjálfsagt eru þeir núna ráfandi um ímyndaðan heim raunheima)...
Eigum við að biðja Enter um að loka þessu svæði (hægt væri að færa Baggasveininn og Heyrst hefur eitthvert annað fyrst)?
Er enginn möguleiki að bjarga þessum sálum frá þessum svokölluðu raunheimum?
Enga ástæðu sjáum vjer til að loka þessu svæði. Textanum er lýsir svæðinu, þ.e. Allt slúður og umræður um það sem efst er á baugi hverju sinni mætti hinsvegar breyta lítillega. Þyki ástæða til róttækari ráðstafana mætti færa alla þræði hjeðan á önnur svæði.
Reyndar er erfitt að komast hjá því að raunheimar nái að síast eitthvað hjerna inn og hugsanlegt að það gerðist annarsstaðar yrði svæði þessu lokað. Svo er auðvitað bara gesta að bregðast við þyki þeim það sem ekki er til óþarflega áberandi.
Það er ágætt að hafa sérstakt svæði þar sem raunheimavillan fær að njóta sín. Með þeim hætti er auðveldara að gera rannsóknir á meininu og einangra þá sem eru haldnir því.
Kemur fyrir hátæknieftirlitsbúnaði á Efst á baugi til að fylgjast með öllum hjer og bera kennsl á hugsanlega kandidata til innlagnar á Ofskynjanameðferðarstofnun
Það er ágætt að hafa sérstakt svæði þar sem raunheimavillan fær að njóta sín. Með þeim hætti er auðveldara að gera rannsóknir á meininu og einangra þá sem eru haldnir því.
Ég er sammála Þarfagreini... ég skil ekki af hverju ég er alltaf sammála Þarfagreini... líklega er Glúmur eitthvað að ruglast í persónusköpun okkar...
Umræðu um svokallaða raunheima má ekki loka alveg á. Frekar en um önnur atriði sem óransökuð eru.
Þó vert að varast of opinskáa umræðu um raunheima þar sem þeir eru aðeins goðsögn, og ekkert hæft í staðhæfingum varðandi þá.
Ætlið þið svo næst að banna umræður um Hálsaskóg? Hræðist tilhugsunina
Ætlið þið svo næst að banna umræður um Hálsaskóg? Hræðist tilhugsunina
Umræða um raunheima er ekki bönnuð.
Hjúkkar
Er Hálsaskógur þá í þessum Raunheimum? Klórar sér í höfðinu Ég man ekkert eftir því.
Þarf ég þá að fara aftur út um Innflytjendahliðið? Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þú getur stofnað þráðinn Hálsaskóg á Baggalútíu og boðið upp á piparkökur þar... þá verður Hálsaskógur til...
ég legg til að þetta svæði verði bannað óhörðnuðum sálum með fá innlegg því að þeim er væntanlega hættast við að taka umræðurnar alvarlega.
Nær væri að útbúa „Efst á baugi“ svæðið þannig að hinar óhörðnuðu sálir sjái það ekki...
Slíkt var eitt sinn reynt með annað svæði og gafst vel til að byrja með en ýtti svo smám saman undir tortryggni og úlfúð því ekki voru allir sáttir við að hafa sum svæði 'hálflokuð'. Vjer mælum því ekki með slíku fyrirkomulagi.
Ég mæli með því!
Nei það er reyndar satt... Ekki nema þá að svæðið myndi opnast frekar fljótt, tildæmis um leið og viðkomandi sál fengi á sig mynd.
Ég sá einu sinni raunheima!
Ég skaut þá PANG!
Þannig að ég held að vandamálið sé búið.
Stekkur á bak bleika folanum og ríður út í sólarlagið
Eftirfarandi er víst að gerast í hinum svokölluðu útlensku raunheimum: