Ég heyrði ávæning af þættinum. Hann hljómaði líkt og áður, nema hvað ég komst að því að Hilmir Snær er heldur skárri þegar maður sér hann ekki.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Úpps, ætlaði ekki að gefa skít í íslenskt "dæmi.".. Biðst afsökunar :)
Er bara orðin alltof vön umræðum á www.barnaland.is - Þar inni þarftu ekki að hafa neitt á milli eyrnanna, sem er útaf fyrir sig yndislegt hehe
Skammast mín ekkert fyrir að vera hálfur barnlendingur, en lofa að bæta mig hérna inni, frá og með þessari umræðu.
Það er svosem í lagi, við skömmumst okkar nógu mikið fyrir þína hönd. Telur villurnar í flýti, dæsir svo mæðulega og lítur út um gluggann Já, það er mikið sem þarf að bæta frá og með þessari umræðu (í fyrsta lagi, rangar gæsalappir, í öðru lagi, röng punkta- og greinarmerkjanotkun, í þriðja lagi, tvípunktur-svigi lokast og í fjórða lagi: „hehe.”).
Veistu, þú ert bara dóni.
Ég kom ekki hingað inn til þess að vera með nein leiðindi. Vinkona mín sem tekur þátt í umræðum hérna inni, benti mér á að koma hingað. Datt ekki í hug að hérna inni væri fólk eins og þú.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Tjah... Dóni og ekki dóni. Ég held að það sé ekkert launungarmál að Gestapóar telja sig hafa skapað dásamlega vin í andlegri eyðimörk gagnvarpsins og þeir sem telja sig hafa eitthvað hingað að sækja þurfa að hafa bein í nefinu. Hér er settur upp veggur fyrir nýliða og ef þeir komast ekki upp á vegginn þá er það ekkert endilega af því að við erum vond eða dónaleg, við viljum bara að þeir sem komast yfir séu tilbúnir fyrir það sem á eftir kemur.
Ef það hefði komið eitthvað almennilegt svar í staðinn fyrir þetta væl (bæði hér og á öðrum þræði), þá væri sko allt búið á milli okkar núna, hvorki ég né aðrir erfa einhver nýliðamistök að eilífu. Eftir þessi svör þá held ég svei mér þá að þú sért bara ekki tilbúin fyrir Baggalút. Eða Baggalútur ekki tilbúinn fyrir þig (og verður ekki á meðan ég (og fleiri) stundum þennan vef). Hér er all-sérstakt samfélag og við skömmumst okkar ekkert fyrir að reyna að halda því þannig, ef hver sem er gæti valsað hingað inn á skítugum skónum án þess að skilja út á hvað Gestapóið gengur þá væri þetta ekki lengi að breytast í eitthvað álíka skrímsli og Bxxxxxxxx.is er.
Ekki sérðu okkur æða inn á Bxxxxxxxx.is, talandi um tímavélar og Glúm og kakó og að éta Færeyinga og ætlast til þess að allir skilji! Til þess að komast inn í samfélag verður maður að læra á það, bæði skráðar og óskráðar reglur. Ef þú hefðir t.d. skoðað þig aðeins um hefðir þú e.t.v. fundið þráðinn hans Vlads, Ráð til nýliða sem tekur á flestu því sem nýliðar ættu að hafa í huga þegar gengið er inn á Gestapó eða lesið í gegnum Innflytjendahliðið og séð að svona viðtökur eru ekki óalgengar hérna (sjá einnig svæðið Vér ánetjaðir þar sem nýliðar kynna sig). En nei, í staðinn fyrir það þá gerir þú ráð fyrir því að Gestapó sé bara eins og hvert annað spjallborð og tekur því sem persónulegri árás þegar þú kemst að því að svo er ekki. Auðvitað er þetta ekki á neinn hátt persónulegt; okkar orð og athafnir eru eingöngu ætlaðar í uppeldislegum tilgangi (þurfum ekkert barnaland til að stunda okkar uppeldi) og miðast alfarið að því að gera þig að góðum og gegnheilum Gestapóa.
Ef þú telur þig hafa eitthvað fram að færa hérna þá endilega haltu áfram - eins og ég segi þá erum við alls ekki langrækin (og þá er lykillinn bara að lesa, lesa og lesa meira af gömlum þráðum og félagsritum (mæli sérstaklega með félagsritum Skabba um sögu Gestapó)). Ákveðir þú að dvelja hér áfram skal ég nánast lofa þér því að með tíð og tíma kemur þú til með að taka á svipaðan hátt á móti nýliðum.
Ef ekki, þá lýkur okkar orðaskiptum hér með, góðar stundir.
-----
Annars sá ég eitthvað af Spaugstofunni í kvöld og þótt mér hafi stokkið bros þá fannst mér þetta á heildina litið frekar óspennandi, ég held svei mér þá að út-tökurnar í bláenda þáttarins séu með skárri atriðum í þættinum.
Ég hlæ oftast mest af blúpers atriðunum í enda þáttanna... en ég var að vona að þetta mál væri allt saman bara grín, því miður virðist þetta vera alvöru. Samt gaman að sjá hina kallana lauma þessu máli inn í þáttinn með reglulegu millibili.
Mér finnst og hefur alltaf fundist Randver frekar leiðinlegur leikari. Aðallega því hann virðist bara hafa nákvæmlega ekkert gaman að þessu sjálfur. Og ég hef meira að segja leikið í spaugstofuþætti. Þ.e.a.s skjátan sem leikur mig í raunheimum Fer í handahlaup og tognar í bakinu
Úpps, ætlaði ekki að gefa skít í íslenskt "dæmi.".. Biðst afsökunar :)
Er bara orðin alltof vön umræðum á www.barnaland.is - Þar inni þarftu ekki að hafa neitt á milli eyrnanna, sem er útaf fyrir sig yndislegt hehe
Skammast mín ekkert fyrir að vera hálfur barnlendingur, en lofa að bæta mig hérna inni, frá og með þessari umræðu.
Það er svosem í lagi, við skömmumst okkar nógu mikið fyrir þína hönd. Telur villurnar í flýti, dæsir svo mæðulega og lítur út um gluggann Já, það er mikið sem þarf að bæta frá og með þessari umræðu (í fyrsta lagi, rangar gæsalappir, í öðru lagi, röng punkta- og greinarmerkjanotkun, í þriðja lagi, tvípunktur-svigi lokast og í fjórða lagi: „hehe.”).
Veistu, þú ert bara dóni.
Ég kom ekki hingað inn til þess að vera með nein leiðindi. Vinkona mín sem tekur þátt í umræðum hérna inni, benti mér á að koma hingað. Datt ekki í hug að hérna inni væri fólk eins og þú.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Tjah... Dóni og ekki dóni. Ég held að það sé ekkert launungarmál að Gestapóar telja sig hafa skapað dásamlega vin í andlegri eyðimörk gagnvarpsins og þeir sem telja sig hafa eitthvað hingað að sækja þurfa að hafa bein í nefinu. Hér er settur upp veggur fyrir nýliða og ef þeir komast ekki upp á vegginn þá er það ekkert endilega af því að við erum vond eða dónaleg, við viljum bara að þeir sem komast yfir séu tilbúnir fyrir það sem á eftir kemur.
Ef það hefði komið eitthvað almennilegt svar í staðinn fyrir þetta væl (bæði hér og á öðrum þræði), þá væri sko allt búið á milli okkar núna, hvorki ég né aðrir erfa einhver nýliðamistök að eilífu. Eftir þessi svör þá held ég svei mér þá að þú sért bara ekki tilbúin fyrir Baggalút. Eða Baggalútur ekki tilbúinn fyrir þig (og verður ekki á meðan ég (og fleiri) stundum þennan vef). Hér er all-sérstakt samfélag og við skömmumst okkar ekkert fyrir að reyna að halda því þannig, ef hver sem er gæti valsað hingað inn á skítugum skónum án þess að skilja út á hvað Gestapóið gengur þá væri þetta ekki lengi að breytast í eitthvað álíka skrímsli og Bxxxxxxxx.is er.
Ekki sérðu okkur æða inn á Bxxxxxxxx.is, talandi um tímavélar og Glúm og kakó og að éta Færeyinga og ætlast til þess að allir skilji! Til þess að komast inn í samfélag verður maður að læra á það, bæði skráðar og óskráðar reglur. Ef þú hefðir t.d. skoðað þig aðeins um hefðir þú e.t.v. fundið þráðinn hans Vlads, Ráð til nýliða sem tekur á flestu því sem nýliðar ættu að hafa í huga þegar gengið er inn á Gestapó eða lesið í gegnum Innflytjendahliðið og séð að svona viðtökur eru ekki óalgengar hérna (sjá einnig svæðið Vér ánetjaðir þar sem nýliðar kynna sig). En nei, í staðinn fyrir það þá gerir þú ráð fyrir því að Gestapó sé bara eins og hvert annað spjallborð og tekur því sem persónulegri árás þegar þú kemst að því að svo er ekki. Auðvitað er þetta ekki á neinn hátt persónulegt; okkar orð og athafnir eru eingöngu ætlaðar í uppeldislegum tilgangi (þurfum ekkert barnaland til að stunda okkar uppeldi) og miðast alfarið að því að gera þig að góðum og gegnheilum Gestapóa.
Ef þú telur þig hafa eitthvað fram að færa hérna þá endilega haltu áfram - eins og ég segi þá erum við alls ekki langrækin (og þá er lykillinn bara að lesa, lesa og lesa meira af gömlum þráðum og félagsritum (mæli sérstaklega með félagsritum Skabba um sögu Gestapó)). Ákveðir þú að dvelja hér áfram skal ég nánast lofa þér því að með tíð og tíma kemur þú til með að taka á svipaðan hátt á móti nýliðum.
Ef ekki, þá lýkur okkar orðaskiptum hér með, góðar stundir.
-----
Annars sá ég eitthvað af Spaugstofunni í kvöld og þótt mér hafi stokkið bros þá fannst mér þetta á heildina litið frekar óspennandi, ég held svei mér þá að út-tökurnar í bláenda þáttarins séu með skárri atriðum í þættinum.
Ef ég ákveð að dvelja hérna lengur þá er eitt víst, að ég ætla að koma fram við fólk eins og ég vil að það komi fram við mig. Burt séð frá því hvort það séu nýliðar eða öldungar.
En það gerum við nú öll! Ljómar upp Veltist um af hlátri
Við erum nú allflest mjög kurteist og skemmtilegt fólk og komum vel fram við hvort annað.
Hugsar sig um
Nema kanski Tigra, hún á það til að glefsa.
En já, ég segi fyrir mitt leyti að þessi spaugstofuþróun er alls ekki af hinu góða.
Sigrún Edda oflék, atriðið með nútíma forstjóra var bara neyðarlegt, sérstaklega á fundinum er allir voru móðir og másandi, en gamlar "spaugstofuuppskriftir" voru að virka vel á mig t.d Flugger skopstælingin.
Það er nóg til af svona "Sketsaþáttum" og maður gat alltaf glott pínu yfir heilalausum eftirhermum á málefnum líðandi stundar hjá þessari öldnu spaugstofu.
Glottir eins og fífl
>>-( 0 0 )-->
........~
Þetta er of fyndið. Lamast úr hlátri
Glottir eins og fífl
>>-( 0 0 )-->
........~
Þetta er of fyndið. Lamast úr hlátri
Sammála.
En já, varðandi Spaugstofuna þá var þátturinn slappur í heildina, þó ég hafi nú flissað yfir sumu, sérstaklega Fluggerlitunum og stjórnmálamönnunum sem tjáðu sig um Leyndarmálið.
Aðalvandamál þáttarins er tilhneigingin til að ofnota hugmyndir og draga atriði á langinn löngu eftir að ljóst er hver húmorinn í þeim er. Atriðin verða ekkert fyndnari þó hamast sé á sömu hugmyndinni í eina mínútu í viðbót. Svo er sumt afskaplega klént í grunninn, eins og skokkararnir á fundinum - ég er sammála Hvæsa í því að það var arfaslappt. Einnig virðist það vera svo að Spaugstofumenn eru langbestir í pólitískum húmor, og ættu að einbeita sér meira að honum, frekar en prumpu- og pisshúmor.
Ég verð nú að segja, að ég festist við skjáinn. Fannst þátturinn skemmtilegur, gaman þegar það koma ný andlit þarna inn. En það var algjör óþarfi að reka greyið Randver. Fannst vörutorgshúmorinn æði. Prumpustampurinn var bara sniðugur, sömuleiðis pissuflöskurnar og "bekken" Ljómar upp
Glottir eins og fífl
>>-( 0 0 )-->
........~
Þetta er of fyndið. Lamast úr hlátri
Sammála.
Úff fer úr límingunum af hlátri.....Úff...
Er það bara ég eða er eitthver óskapleg mótsögn í því fólgin að á spjallborði sem lýsir sér sem vin í andlegri eyðimörk netheima séu aðalumræður daxins um fokking Spaugstofuna?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ert þú nokkuð í Hálsaskógi? Brosir vongóður
Er það bara ég eða er eitthver óskapleg mótsögn í því fólgin að á spjallborði sem lýsir sér sem vin í andlegri eyðimörk netheima séu aðalumræður daxins um fokking Spaugstofuna?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þú segir nokkuð. Þessi þráður er allur hinn kostulegasti.
Er það bara ég eða er eitthver óskapleg mótsögn í því fólgin að á spjallborði sem lýsir sér sem vin í andlegri eyðimörk netheima séu aðalumræður daxins um fokking Spaugstofuna?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Heyr heyr.
Talið um impressionistana í Sjónvarpinu. Þeir eru sko fyndnir. Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri