Monet var snillingur!
Snillingur segi ég!!!
Degas var hinsvegar perri Glottir
Er það bara ég eða er eitthver óskapleg mótsögn í því fólgin að á spjallborði sem lýsir sér sem vin í andlegri eyðimörk netheima séu aðalumræður daxins um fokking Spaugstofuna?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég klappa fyrir þér.
Klappar
Brottvísun Randvers leysti einungis 1/5 af vandanum.
Þar hittirðu naglann á höfuðið.
Er það bara ég eða er eitthver óskapleg mótsögn í því fólgin að á spjallborði sem lýsir sér sem vin í andlegri eyðimörk netheima séu aðalumræður daxins um fokking Spaugstofuna?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þar sem ég byrjaði þennan þráð þá er ekki úr vegi að ég útskýri ástæður þess... og til að koma í veg fyrir allan vafa þá finnst mér löngu tímabært að taka þennan þátt af dagskrá... er ekki kominn tími til að Baggalútur fái að koma fram í sjónvarpi... með alvöru fréttir?
Já ég ætlaði að útskýra... mér fannst þessi uppsögn Randvers vera tilvalin til að kljúfa til mergjar... því hún angar bókstaflega af samsæri... skemmtilegustu þræðirnir hér á Efst á baugi hafa verið um samsæriskenningar og því fannst mér þetta upplagt umræðuefni...
xT
Vertu ekkert að afsaka þig Skabbi. Í raunheimum ertu bara enn einn meðaljóninn og horfir á Spaugstofuna, ER, Lost, Tekinn og allt hitt.....
Vertu ekkert að afsaka þig Skabbi. Í raunheimum ertu bara enn einn meðaljóninn og horfir á Spaugstofuna, ER, Lost, Tekinn og allt hitt.....
Hér grunar mig að Þórhallur sé loks mættur... og hann er rætinn í dag...
Nú er alkunna að Glúmur er allir nánast gestirnir hjer og því er Þórhallur Glúmur (eða öfugt) sje tilgáta Skabba um hver Golíat sje rjett. En hafa verið gerðar rannsóknir á hvort Glúmur sje líka ritstjórnin ? Vjer höfum ávallt talið að eigi væri svo en skort sannanir. Eru slíkar sannanir kannski ekki til og ástæðan sú að Glúmur sje eftir alltsaman líka ritstjórnin ? Sje svo er Baggalútur nú þegar nánast daglega í sjónvarpinu.
Ekki viðurkenna það Offari, ekki viðurkenna það. Annars reyni ég að missa ekki af Spaugstofunni og hlæ oft og iðulega.... Glottir eins og Ingjaldsfíflið
Pólitísk rétttrú hér segir mönnum að þeir megi ekki skemmta sér yfir slíkri lágmenningu.
Annars var ég að hlusta á tímamóta leiklestur á Rás 2. Þeir Einar Einarsson, Sigvaldi Sigvaldason og Gunnar Gunnarson fóru þar fimum röddum um kafla úr hinu ástkæra leikverki Egners, ,,Kardimommubærinn".
Það er alveg hægt að hlæja af og til af spaugstofunni... en eru þá ekki flestir fullorðnir ekki aðallega að hlæja að pólitíska húmornum?
Ég hló til dæmis í marga daga yfir Þjóðsöngsmálinu.
Ég horfi nær eingöngu á Gilmore girls... það sem þær geta tekið sér fyrir hendur... óborganlegt...
Það er rétt Skabbi, viðurkenna, viðurkenna. Það mætti etv stofna þráð hér þar sem menn og málleysingjar skrifta og viðurkenna daður sitt við lágmenningu og ,,óæskilegt" menningarefni. Nóg er af því. Starir þegjandi út í loftið
Ekki viðurkenna það Offari, ekki viðurkenna það. Annars reyni ég að missa ekki af Spaugstofunni og hlæ oft og iðulega.... Glottir eins og Ingjaldsfíflið
Pólitísk rétttrú hér segir mönnum að þeir megi ekki skemmta sér yfir slíkri lágmenningu.
Annars var ég að hlusta á tímamóta leiklestur á Rás 2. Þeir Einar Einarsson, Sigvaldi Sigvaldason og Gunnar Gunnarson fóru þar fimum röddum um kafla úr hinu ástkæra leikverki Egners, ,,Kardimommubærinn".
Ooo já, þetta var unun á að hlýða. Ég táraðist þegar verið var að lýsa því þegar ljónið beit stóru tána af Jesper (var það ekki annars Jesper?), þvílíka leikhæfileka hef ég sjaldan vitað áður. Hver einasta tilfinning sem mannskepnan gæti mögulega upplifað við missi á útlim barst ljóslifandi í gegnum útvarpstækið í einlægri túlkun leikara og ég get einungis vonað að við eigum eftir að heyra meira frá þessum frábæra leikhóp á komandi misserum.
Fimm stjörnur á þessa tímamótaframmistöðu.
Já, þetta var alveg á pari við Gilmore görls hjá þeim. Ljómar upp
Og hvort fannst ykkur nú stofan verri eða betri?
Mér fannst hún vera öðruvísi. Ekkert endilega betri. En þegar það eru svona breytingar, þá er eðlilegra að maður festist frekar við skjáinn, af því að það er eitthvað nýtt í gangi.
Ég hef sem betur fer lítið ,,fezt við skjáinn" upp á síðkastið. Þó standa formúlan og HM-kvenna fyllilega fyrir sínu þannig að möguleikinn hefur vissulega verið fyrir hendiGlottir eins og fíflið sem hann er.
Spaugstofan er ágætis afþreying og eina húmoríska efnið sem RÚV er að framleiða. Ég hef oft mjög gaman af þeim og get hlegið mikið að þeim. Fyrir okkur sem erum á sömu línu í húmor og þeir þá finnst mér allt í lagi að halda áfram að framleiða þessa þætti. Skárra en t.a.m. endalausar seríur með Jóni Gnarr. Hann er fyndinn upp að vissu marki en stundum fær maður nóg. Spaugstofan er einu sinni í viku en Jón Gnarr virðist vera á hverjum degi.