Fjóla beið oft fram á nótt
að fleka heljarmenni,
enda var þeim ekki rótt
undir kvöld hjá henni.
sósuna ég set þá á
og svæli þessu niður.
Fyrst ég hafa í matinn má
moðsteikt hrossaiður
sósuna ég set þá á
og svæli þessu niður.
kúluna á kolli mér
kann ég ekki að skýra.
Bananahýði og bráðið smér
ég bar á gólf, með nýra,
en kúluna á kolli mér
kann ég ekki að skýra.
þar með verður þarfanautið
þokkalega nýtt.
Senn mun negla norðurskautið,
notalegt og hlýtt.
Þar með verður þarfanautið
þokkalega nýtt.
mér finnst síðan mesta synd
að myndavél var engin.
Áðan sá ég æra kind
að erfða- reikna -mengin,
mér finnst síðan mesta synd
að myndavél var engin.
Það er gott að þrefa um
þrúgusykur reiðinnar.
Ef þín er orðin hugsun hrum
hugðu'að ráði neyðinnar:
því þá er gott að þrefa um
þrúgusykur reiðinnar.
---
Vegna þess að vegaleysur
varna því að það sé fært.
Til fjalla ekki fer í reysur
á Fíatbraki sem mér er kært
vegna þess að vegaleysur
varna því að það sé fært.
og horfi því á Dans dans dans
dansara í kvöld.
Mitt líf í kátra kvenna fans
hvarf á fyrri öld,
og horfi því á „Dans dans dans“
dansara í kvöld.
...
og kýs því helst að kaupa mitt
í Kolaporti.
Vantar mig nú veiðikitt
í vöruskorti
og kýs því helst að kaupa mitt
í Kolaporti.
---
Gaman væri'að geta það
en guggna mun ég vísast.
Mjög ég vildi' í bubblubað
blómarósar hnýsast.
Gaman væri' að geta það
en guggna mun ég vísast.
---
...
...
sagði versti vinur minn
við mig einu sinni.
„Ég ætla að liggja enn um sinn
einn hjá konu þinni,“
sagði versti vinur minn
við mig einu sinni.
...
...
það var einmitt upp úr því
að ég lagði á flótta.
Ég konu þína kyssti, hí!
– en komin brátt var ótta,
það var einmitt upp úr því
að ég lagði á flótta.
---
launin voru lítil þá,
lunti, fýla, kergja.
Fortíðina flestir þrá,
en fjölmargt var að ergja:
Launin voru lítil þá,
lunti, fýla, kergja.
---
segðu engum, segðu ei frá,
sóminn er að veði.
Í fjármálum ég fór á ská,
fórna varð ég peði.
Segðu engum, segðu ei frá,
sóminn er að veði.
Kim Jong-Un er kominn í
kerlinguna mína.
Sól á himni, heit og ný,
á heiminn nú mun skína:
Kim Jong-Un er kominn í
kerlinguna mína.
---
allt sem forðum átti best,
Arion á núna.
Núna máttu ná í prest,
og negla kistu fúna,
allt sem forðum átti best,
Arion á núna.
dreg ég síðan drauginn inn
og dressa hann að nýju.
Út þér kasta, maður minn,
og myrði í æluspýju.
Dreg ég síðan drauginn inn
og dressa hann að nýju.
...
svo heppni var að hafa af
helvísk áramótin.
Með skoteldum sem Skúli gaf
skaut ég mig í fótinn
svo heppni var að hafa af
helvísk áramótin.
fór ég ekki á fætur því
frostið náði beinum.