Eftir að fór upp á þig
á þér þandist maginn.
Hefði betur haldið mig
heima þennan daginn.
...
Kaffi nýtt og kleinur með,
kanelsnúð og landa.
Í veislu hef ég varla séð
viðbjóðslegri fjanda.
Kaffi nýtt og kleinur með,
kanelsnúð og landa.
Blasir við mér bokkan tóm
blár ég er og marinn.
Fastur er í fjandans klóm,
finn ég ekki barinn.
Blasir við mér bokkan tóm,
blár ég er og marinn.
Mikið væri indælt ef
engir væru slíkir.
Stjóranum þeim reynda ref
reynast fáir líkir.
Mikið væri indælt ef
engir væru slíkir.
Ekki frekar en í gær
edrú mun hann verða.
Vímus okkar vinur kær
vímuna vill herða.
Ekki frekar en í gær
edrú mun hann verða.
Alkóhólið allra síst
á hans huga vinnur.
Ekkert skaðar Vímus víst,
vart hann á sér finnur.
Alkóhólið allra síst
á hans huga vinnur.
einn ég sit í ælunni,
útvarpið í botni.
Syndandi í sælunni
sem ég fékk frá Drottni.
Einn ég sit í ælunni,
útvarpið í botni.
...
Bubbi var með böllinn í
botninum á Megas.
Í gær var mikið hopp og hí
á herrakvöldi á Vegas:
Bubbi var með böllinn í
botninum á Megas.
...síðla kvölds hún sýndi mér
silfurlitann barminn.
Leoncie var lendaber
lét´ana´uppá arminn.
Síðla kvölds hún sýndi mér
silfurlitann barminn.
blómið litríkt,leiftrandi
laglegt bæð´og gott
Kom úr limnum kleyfhlandi
kaldur og með skott.
blómið litríkt,leiftrandi
laglegt bæð´og gott
.
.
Kremkexið og kakómalt
kann að bæta skapið.
Ef að þér er alltof kalt
og að þér þjarmar krapið;
Kremkexið og kakómalt
kann að bæta skapið.
það er gott og það mér finnst
það besta í heimi.
Við dömu hef ég marga mynnst
og minningarnar geymi,
það er gott og það mér finnst
það besta í heimi.
...
Söðla skaltu röskur Rauð
og ríða út á Sauðárkrók.
Þótt langamma sé löngu dauð
þá langar mig í pulsu og kók.
Söðla skaltu röskur Rauð
og ríða út á Sauðárkrók.
...
Oh my darling, I love you,
ómar gamla stefið.
Ófagurt er útlit nú.
Ennþá lengist nefið.
Fer í þrot vort þjóðarbú.
Það er alveg gefið.
Endurvekjum Tjallans trú,
taka þarf nú skrefið:
Oh my Darling, I love you,
ómar gamla stefið.
-----------------------------------
-
-
Mjög var komið meiren nóg,
menn þó áfram héldu.
Auðmennirnir arðránsplóg
öttu á for og keldu.
Mjög var komið meiren nóg,
menn þó áfram héldu.
Rétt er hann að flengja fyrst,
faðma svo og knúsa.
Hafi brugðist bogalist
hins berskjaldaða Fúsa
Rétt er hann að flengja fyrst,
faðma svo og knúsa.
...
maður segir hangir, ekki hengur!
Hafðu það og drattastu svo burt.
Þínar villur þolir enginn lengur
þetta hér nú lærir mannsbarn hvurt:
maður segir hangir, ekki hengur!
Hafðu það og drattastu svo burt.
Upp því tökum annað nafn
og aðra mynt.
Helvískt Bretahommasafn
nú hefur kynt
Upp því tökum annað nafn
og aðra mynt.
--
Í buxum var þá bremsufar
brúnt var sparað ekki.