Bónar vil ég biðja þig
að berja mig í framan.
jafnvel þó ég meiði mig
er mjög svo að því gaman.
Ekkert man ég eftir því
enda dauðadrukkinn.
Fjölmörg voru fyllerí
forðum góð & sukkin;
en ekkert man ég eftir því,
enda dauðadrukkinn.
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . naumast var þá nokkur spjör
á neinni þeirra lengur.
Í kvennaskálann kom með fjör,
klúr og baldinn drengur,
naumast var þá nokkur spjör
á neinni þeirra lengur.
...
Í fatapóker fékk hann röð
og fór hún þá úr kjólnum.
hannvildi hennar leggjaí löð
og lepja á unaðshólnum
Í fatapóker fékk hann röð
og fór hún þá úr kjólnum.
enginn hefur síðan séð
slíkan asna gapaRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfiðDæsir mæðulega og lítur út um gluggannKlórar sér í höfðinuHrökklast aftur á bak og hrasar viðStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sérStarir þegjandi út í loftið
...
Í fatapóker fékk hann röð
og fór hún þá úr kjólnum.
[ Smá varíasjón :]
Sitja hjónin, sæl & glöð,
sitt á hvorum stólnum.
Í fatapóker fékk hún röð,
og fór hann þá úr kjólnum.
enginn hefur síðan séð
slíkan asna gapa
asninn klifrað´ uppí tréð
öngvu hafð´að tapa
enginn hefur síðan séð
[svoddan] asna gapa
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . svo er bar´ að bíð´ & sjá
bráðlega hvað gerist.
Strangtrúaðir stríðast á
stefnt í odda skerist.
svo er bar´ að bíð´ & sjá
bráðlega hvað gerist.
Út um dyrnar arkar hann
ákaflega glottandi.
Eftir kynni við kvenmann
sem kann vel við sig tottandi
Út um dyrnar arkar hann
ákaflega glottandi.
....
Þó sumir vilji Villa enn
viðloðandi borgina.
Nú Birni Inga batnar senn
það bætir lítt á sorgina.
Þó sumir vilji Villa enn
viðloðandi borgina.
Hann var ætið ógnarmjór
og aumingi til verka.
Dagur moka flórinn fór
feitra mammonsklerka;
en hann var ætið ógnarmjór
og aumingi til verka.
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . prísa sig þá sæla víst
sautjánþúsund mávar.
Úr hlaupinu ei skotið skýst
skyttan heim nú ráfar.
Prísa sig þá sæla víst
sautjánþúsund mávar.
Kannske þetta kenni mér
kjaftinum að loka.
Orð mín bíta eins og lér,
ástin tók sinn poka.
Kannske þetta kenni mér
kjaftinum að loka.
Stjörfu augun störðu í mót
er stingnn rak í kvið.
Morðinginn tók mikið spjót
og mér ei veitti grið.
Stjörfu augun störðu í mót
er stingnn rak í kvið.
Glúmur hérna gleður sig
við gamanmál og drykkju.
Ef í djeilið dæmir mig
dómarinn í skykkju.
Glúmur hérna gleður sig
við gamanmál og drykkju.
Þannig best ég þekki hann
það er staðreynd málsins.
Kveð ég hér um klúran mann,
konung lygatálsins.
Þannig best ég þekki hann,
það er staðreynd málsins.
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . kvenþjóðin er kröfuhörð,
en körlunum er sama.
Frá Hvurslags:
Feminismi i frjóan svörð
féll með glans og drama.
Kvenþjóðin er kröfuhörð
en körlunum er sama
....
....
konan er í heiðri höfð
og halt'áfram að strauja.
(Þess má geta að ef ekkert hentugt rímorð finnst við "strauja" þá má breyta því í "skúra".)
Hamingjan er himnagöfð
hjá þeim Villa og Gauja.
konan er í heiðri höfð
og halt'áfram að strauja.
Iss, það má alveg ríma strauja Glottir eins og fífl
...
...
Gat þá eigi gengið með
Guði, Þór og Búdda.
Fjölmargt getur skrýtið skeð;
skrattinn hirti Dúdda,
sem gat þá eigi gengið með
Guði, Þór og Búdda.
-----------------------------------
. . .
. . .
. . . glötuð er þá sérhver sál
sanntrúaðra Kana.