Ljómar upp
Ég ætla að gefa krossgötu mitt atkvæði.
Lokahnykkur Leira var
víst ljúffengt hnoss
Dverghent bragð þó brást víst þar
og brast í kross.
Regína er stuðlasterk
og stöðugt rís.
Hennar góða heildarverk
ég hérna kýs.
Það munaði semsagt litlu að ég kysi Leira... en ég ég kýs Regínu...
10 atkvæði þarf til að hengja... Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Hvernig fór þessi kosning? Útvarstjóri og Billi kusu t.d. báðir þó þeir hafi ekki átt vísu í þessari lotu. Er þá þeirra atkvæði gilt?
5) Allir skráðir Gestapóar mega þá gefa atkvæði (sem innlegg hér) einhverri af þeim vísum sem komu á þræðinum.
Ég kaus a.m.k. ekki mitt aukasjálf. Glottir eins og fífl
Hvernig fór þessi kosning? Útvarstjóri og Billi kusu t.d. báðir þó þeir hafi ekki átt vísu í þessari lotu. Er þá þeirra atkvæði gilt?
Þú fékkst öll atkvæðin... er það ekki...
Spurning með næstu keppni?
Jamm, auðvitað átti ég að lesa fyrstu síðu, og ég fékk ekki mitt atkvæði.
Roðnar og þakkar fyrir sig.
En nú skal yrkja úrkast, sem er eins og dverghenda nema síðlínur eru einu atkvæði lengri.
Úrkast skulum yrkja vinir,
öll í bendu.
Vefðu betri voð en hinir,
vísu sendu.
Á þriðjudagskvöldið eftir átta má kjósa, og á miðvikudagskvöld skulu atkvæði talin.
Eru kvæðin öll nú búin?
Ekkert flæði?
Virðast skáldin vera flúin,
vísnaþræði.
Vakir þögul vængjuð ýsan,
von þú hikir.
Samt er ljóst að þetta þykir
þægsta vísan.
Vakir þögul vængjuð ýsan,
von þú hikir.
Samt er ljóst að þetta þykir
þægsta vísan.
Djöfull klúðraði ég þessu... hehe...
Vakir þögul, von þú hikir
vængjuð ýsan.
Samt er ljóst að þetta þykir
þægsta vísan.
veljið þessa vinir stöku
verðlaun þessi:
myglað brauð og moli' af köku,
mynd af fressi
Íslands, silfurstjarna neðan
saknað hef ég
og náð að dreyma nóg, á meðan
um nætur sef ég.
Í votum buxum veð ég rótið
með vind í fangið
og horfi sæll á salta grjótið
og sjávarþangið.
Tekur sporið tjúttar Bingi
tvist og svo bast.
Vondur snýst nú Vill' í hringi
varð hann úrkast.
Úrkastið á þessum þræði
þannig liggur.
Verðlaun fyrir vísnagæði
Vímus þiggur.
Það er víst komið þriðjudagskvöld.
Ég kýs Vímusar vísu.
Já, tek undir með Regínu og veiti Vímusi mitt atkvæði.
Ég er ykkur sammála enda er það best þegar kvenfólk á í hlut.
Nei án gamans þá fær Regína mitt atkvæði fyrir inganginn.
Gott úrkast hjá þessari ört vaxandi skáldkonu.
Vilja fleiri kjósa?
Vímus fær mitt atkvæði.