Keppni þessi kann að hefja kvæðadrama,
en mér er um það alveg sama.
Hver skyldi mega hneykslast mest á símaauglýsingunni?
Ef ekki væri upprisinn vor andans keri,
í gröfinni sér guðson snéri.
Þetta gengur bara ágætlega. Hér er ein:
skreppur núna skáldið til að skvísu taka
(þannig endar þessi staka)
Þvílík drykkja þvílík nótt og því er skrítið:
Ekki'er búið ákavítið.
Vímus hér með verður með í vísnakeppni.
Oftast fylgir honum heppni.
Drykkur sætur bragðast oftast best í bítið.
Er því búið ákavítið.
Komið að atkvæðagreiðslu?
Útvarpsstjóri fær mitt atkvæði.
Útvarpstjóri fær líka mitt atkvæði...
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Regína fær mitt atkvæði.
Kosningaáróðurinn virkaði svo vel að ég ætla að kjósa fyrri vísu Skabba.
Titrar af valkvíða Fyrri vísa Skabba eða útvarpsstjóri?
Eða Vímus?
En ég ætla að kjósa fyrri vísu Skabba.
Þetta er snúið. Ég á erfitt með að gera upp á milli Stjóra og Skabba en andskotinn hafi það !
Fyrri vísa Skrumarans fær mitt atkvæði.
d~ d~ d~
d~ d~ d~
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Er þetta einhver útlenska?
Nei, þetta er rammgestapósk tákn fyrir að "tisch"-a - eða smella í góm með tungubroddi fram í munni rétt aftan við framtennur.
Það var þróað síðasta vetur á afskaplega merkilegum þræði sem ég man ekki lengur hvað heitir.
Hann hét (heitir vonandi) Smellt í góm.