Pff.
Gullfoss og Selfoss eru í raun málinu óviðkomandi, nær hefði verið að spyrja hvort eignarfallsmyndin af fossi væri fosss. Það sem væri líkast minni spurningu og fjallaði um foss væri að spyrja hvort ætti að skrifa fosssylla eða fossylla.
nei það hlýtur að vera fossssylla
nei það hlýtur að vera fossssylla
Já reyndar - fannst bara svo svakalega gróft að hafa 4 s í orðinu.
ef foss tekur eignarfallsess þá skrifast þetta með fjórum essum
ef til væri skata er nafnið drægi að krossi þá héti hún hugsanlega Krosssskata eða hvað.
Augljóslega, ef þessi orð tækju eignarfalls-ess.
Ég get nú svarað mér sjálf eftir leit í beygingarlýsingum nútímamáls á vef Orðabókar Háskólans.
80. er skrifað áttugasti - mér til mikilla vonbrigða
20. er skrifað tuttugasti - sem mér er alveg sama um
Foss og kross taka ekki eignarfalls-ess - ég er alveg sátt við það.
Ljómar upp
Þar með er niðurstaða fengin og umræðu þessari, er teljast verður lítillega utan við efni þráðarins, þar með lokið. Ætti þá að vera unnt að snúa sjer að hinu rjetta umræðuefni, þ.e. ákvörðun forsendna í tengslum við spurninguna í upphafsinnlegginu svo hægt sje að komast að niðurstöðu um hvort eða hvernig skuli svara henni.
Allar ár renna til sjávar.
Ljómar upp
.... nema þær sem renna í aðrar ár eða vötn.
Ljómar ekki upp
Þar sem að fyrsti innfæddi Bagglýtingurinn fæddist í gær þá legg ég til að sá dagur verði lýstur hinn fyrsti janúar að Bagglýsku tímatali á árinu 1. Samkvæmt því er 2.janúar árið 1 í dag.
Þar sem að fyrsti innfæddi Bagglýtingurinn fæddist í gær þá legg ég til að sá dagur verði lýstur hinn fyrsti janúar að Bagglýsku tímatali á árinu 1. Samkvæmt því er 2.janúar árið 1 í dag.
Þetta er nú bara ansi góð hugmynd.

Þar með er svarið komið við spurningunni í upphafsinnlegginu.
Og líka svarið við álitamálinu um hvort ný öld byrji að loknu árinu 99 eða 100. Að sjáfsögðu er öld ekki liðin fyrr en eftir hundrað ár. Þar með voru síðustu aldamót líka um áramótin 2000 og 2001.
Þar sem að fyrsti innfæddi Bagglýtingurinn fæddist í gær þá legg ég til að sá dagur verði lýstur hinn fyrsti janúar að Bagglýsku tímatali á árinu 1. Samkvæmt því er 2.janúar árið 1 í dag.
Eins og þessi hugmynd er nú skrambi góð, þá verð ég að fá að mótmæla henni. Þorgeir Ljósvetningagoði var gáfaður maður, og hann sá í hendi sér (eða undir feldinum... hm... hvað var hann að gera þar?) að betra væri að hafa einn sið sem samræmdist umheiminum. Með sömu formerkjum er betra fyrir Baggalútíu að nota sama tímatal og er notað í nýlendum okkar - sú stærsta verandi Ísland. Íbúarnir í nýlendunum eru nefnilega svo sauðheimskir að það væri vonlaust að reyna að kenna þeim okkar nýja tímatal.
Til vara óska ég eftir því að við notum hebreska dagatalið, sem á að reikna tímann frá sköpun jarðarinnar. Samkvæmt því myndi vera liðinn rétt rúmur mánuður af árinu 5768, sem mér finnst ákaflega skemmtileg tala. Fattar alltíeinu að '68 var aðal-hippaárið og klæðir sig í litríka batík-blómamussu
Fattar alltíeinu að '68 var aðal-hippaárið og klæðir sig í litríka batík-blómamussu
Hvað eru margir svartir tónar í þessari mussu? Klórar sér í höfðinu
Horfir á mussuna Nú, 5. Sérðu það ekki? Hérna er grásvart blóm með blásvörtum kjarna, þarna við hliðina er laufið í dekkri tón en grásvarta blómið og svo er stilkurinn með aðeins annarri áferð. Allt er þetta svo á grunni sem er myrkari en myrkrið í yfirgefinni kolanámu. Ljómar upp og finnst hún voða hippaleg
Veltir fyrir sér hvort ekki hafi verið um svokallaða andljómun að ræða