Ég hreinlega veit það ekki.Brestur í óstöðvandi grát
Hvað er ár?
Áhald til siglinga, mikið notað til að nema hér land.
Ó? Er það ekki snemma, sem er sá tími er Pói fer á fætur.
Nei, það er "síð"!
Ekkert ár er eiginlega. Það væri eiginlegt, ef eitthvað væri. Annars væri spurningin hvort ár sé viðvarandi ástand. Vafalítið væri rétt að segja "hversu oft hafa 365 dagar liðið frá fæðingu frelsarans?", en "hvaða ár er núna" er ekki jafn örugglega rétt mælt.
Ár vas alda sagði maðurinn, sem lenti í vandræðum á árabát sínum í brimgarðinum. Eða var það árans alda? Klórar sér í höfðinu
Ekkert ár er eiginlega. Það væri eiginlegt, ef eitthvað væri. Annars væri spurningin hvort ár sé viðvarandi ástand. Vafalítið væri rétt að segja "hversu oft hafa 365 dagar liðið frá fæðingu frelsarans?", en "hvaða ár er núna" er ekki jafn örugglega rétt mælt.
Þá væri einnig rétt að spyrja hve oft 364 dagar hafa liðið síðan þá. xT
Auk þess þarf að reikna með hlaupárum o.þ.h. sjertilvikum sje um eitthvað er snertir tíma að ræða.
Vjer erum hinsvegar sammála því er hjer hefur verið gefið í skyn, þ.e. að spurningin er alltof ónákvæmt orðuð til að unnt sje að svara henni. Eigi er minnst á hvaða tímatal sje um að ræða, hvort átt sje við kvk. eða hk. orðið ár, hvar í tíma og rúmi fyrirspyrjandi var staddur er hann spurði o.m.fl.
Því er nauðsynlegt að hefja umræður um hugsanlegar forsendur svars sje ætlunin að reyna að svara spurningunni.
Hvort er réttara að skrifa 80. átttugasti eða áttugasti og 20. tutttugasti eða tuttugasti?
Þrítugasti, fertugasti, fimmtugasti, sextugasti, nítugasti. Getur það verið að rétt sé að skrifa ÁTtugasti? Hvað var þá étið eða hver át?
Velkominn á Gestapó Glottir eins og fífl
Hvort er réttara að skrifa 80. átttugasti eða áttugasti og 20. tutttugasti eða tuttugasti?
Þrítugasti, fertugasti, fimmtugasti, sextugasti, nítugasti. Getur það verið að rétt sé að skrifa ÁTtugasti? Hvað var þá étið eða hver át?
Er þá eignarfallsmyndin af Selfossi = Selfosss?

Þar er ekki um samsett orð að ræða.
EH? Sel-foss? ekki samsett? Starir þegjandi út í loftið
Self-oss þá?
Andskotans bull er þetta. Ef ég sel Gullfoss og segi Ég sel foss þá eru það tvö orð.