— GESTAPÓ —
Hvað er í gangi?
» Gestapó   » Baggalútía
        1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Carrie 26/5/07 21:14

Vladimir Fuckov mælti:

Vjer viljum í byrjun byrja á að þakka gestum þá umhyggju er þeir sýna oss með áhyggjum af undirskrift vorri. Þar eð umræður um Þarfaþing hófust síðan í kjölfar þessara áhyggna er ljóst að þar verður heppilegur vettvangur fyrir oss til að gera gestum í eigin persónu (*) formlega grein fyrir þessum sjerkennilega og að því er virðist óeinkennandi fyrir oss hluta undirskriftarinnar. Það sem vjer eigum hjer við er að líklegt virðist að vjer (*) munum láta sjá oss á umræddu Þarfaþingi ‹Stelur hernaðaráætlunum óvina ríkisins og kemst að því að svo virðist sem þeir ráðgeri eigi hernaðaraðgerðir gegn baggalútíska heimsveldinu um næstu helgi›.

(*) Stjörnumerktu orðin eiga í raun og veru við um staðgengil þann er vjer, líkt og allir aðrir gestir hjer, sendum ávallt fyrir vora hönd á svona samkomur. Þau eru hinsvegar notuð á þennan hátt til að gera ei innlegg vort fram úr hófi ruglingslegt

Ruglingslegt innlegg frá forsetanum, þvílík fjarstæða, daginn sem það gerist munu svín fljúga. ‹Ljómar upp›

Öryggiskona Hlerunarstofnunar og vitavörður.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 26/5/07 21:49

Hvernig er það, verður eitthvað um gestapóa í bænum í kveld. Nú er ég að fara á svokallað rall í bænum og mig vantar að vita hvort það sé þes virði. Því ekki er gaman í hinum svokallaða miðbæ ef vantar aðal skemmtilegheitin þar‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 26/5/07 22:07

Tölvan mín er í gangi, Consúela uppþvottavél og hjartað mitt.

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 28/5/07 00:30

Ég er kominn til Íslands þannig að ég get vonandi mætt á eitthvað Þarfaþing. ‹Ljómar upp›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 28/5/07 00:45

Velkominn heim, hvurslags.

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 28/5/07 00:48

Velkominn. Keyptir þú kínaskó?

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/5/07 00:48

Carrie mælti:

Ruglingslegt innlegg frá forsetanum, þvílík fjarstæða, daginn sem það gerist munu svín fljúga. ‹Ljómar upp›

Er ekki örugglega rjett munað hjá oss að kokteilgrísir þeir er Muss S. Sein átti gátu flogið ? Af sjerstökum ástæðum er orðið afar áríðandi fyrir oss að komast að sannleikanum í því máli ‹Bölvar því að ritstjórn skuli hafa stolið fortíðinni›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 28/5/07 00:50

Sei sei jú mikil ósköp. Kokteilgrísir gátu flogið, í það minnsta einhver afbrigði þeirra.

‹Ruggar sér í ruggustólnum og hugsar um liðna tíma›

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 28/5/07 18:22

VLADIMIR! SLÉTT JÖRÐ Í UNDIRSKRIFT YÐAR Í STAÐ SLJETTRAR JARÐAR ER ÓVIÐUNANDI! YÐUR VERÐUR GRIMMILEGA REFSAÐ!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 28/5/07 22:22

Framtíðarpilturinn Conan. Lokaþáttur. ‹Ljómar upp›

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 28/5/07 22:27

Sex seríur af Scrubs á random... fínt meðan maður er að dunda sér

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Ef ég hugsanlega ætti leið framhjá söluturni skildi ég kanski staldra við og kaupa princepólokex ef ég ætti leið um rósarunna skildi ég tína eina handa þér og kyssa þig og fara með þér út á granda og skoða skipin og bjóða þér í bíó og kyssa þig og kaupa poppkorn í hléinu og kyssa þig aftur og bjóða þér í sólarlandaferð til Spánar og kyssa þig og koma heima og bjóða þér í Rómantísk mat heima hjá mér
með hvítvín og rækjum og síðan skyldum við fara til samans inn á félagsmálastofnun og betla fyrir rafmagnsreiknignum og nokkrum pulsum og súpuketi og hamsatólgi . Mér finst voða ógeðslegt að kyssast með hamsatólg í munninum finst þér það líka ekki elskan mín?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 28/5/07 22:42

Ég er nú voða lítið fyrir að standa í kossaflensi við karlmenn.

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 28/5/07 22:46

Hakuchi mælti:

Ég er nú voða lítið fyrir að standa í kossaflensi við karlmenn.

En konur.‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 28/5/07 22:48

Það er allt annar og kyssanlegri handleggur.

Konungur Baggalútíu.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 28/5/07 22:50

Hakuchi mælti:

Það er allt annar og kyssanlegri handleggur.

Það er nú gott að vita það‹Ljómar upp›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/5/07 23:16

Ívar Sívertsen mælti:

VLADIMIR! SLÉTT JÖRÐ Í UNDIRSKRIFT YÐAR Í STAÐ SLJETTRAR JARÐAR ER ÓVIÐUNANDI! YÐUR VERÐUR GRIMMILEGA REFSAÐ!

Líkt og fram hefur komið framar í þræðinum munum vjer síðar meir við heppilegt tækifæri gera formlega grein fyrir þessu mikilvæga máli er veldur mörgum greinilega miklum áhyggjum, hugsanlega meiri áhyggjum en nokkurt annað mál að undanskilinni sumarlokun og e.t.v. aðgerðum óvina baggalútíska heimsveldisins.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 29/5/07 00:16

Samsæri óvina ríkisins gegn heimsveldi Baggalútíu.

‹Fangelsar óvini ríkisins af handahófi og hækkar hryðjuverkahömlunarskatt um 5%›

Konungur Baggalútíu.
        1, 2, 3  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: