Vjer viljum í byrjun byrja á að þakka gestum þá umhyggju er þeir sýna oss með áhyggjum af undirskrift vorri. Þar eð umræður um Þarfaþing hófust síðan í kjölfar þessara áhyggna er ljóst að þar verður heppilegur vettvangur fyrir oss til að gera gestum í eigin persónu (*) formlega grein fyrir þessum sjerkennilega og að því er virðist óeinkennandi fyrir oss hluta undirskriftarinnar. Það sem vjer eigum hjer við er að líklegt virðist að vjer (*) munum láta sjá oss á umræddu Þarfaþingi Stelur hernaðaráætlunum óvina ríkisins og kemst að því að svo virðist sem þeir ráðgeri eigi hernaðaraðgerðir gegn baggalútíska heimsveldinu um næstu helgi.
(*) Stjörnumerktu orðin eiga í raun og veru við um staðgengil þann er vjer, líkt og allir aðrir gestir hjer, sendum ávallt fyrir vora hönd á svona samkomur. Þau eru hinsvegar notuð á þennan hátt til að gera ei innlegg vort fram úr hófi ruglingslegt
Ruglingslegt innlegg frá forsetanum, þvílík fjarstæða, daginn sem það gerist munu svín fljúga. Ljómar upp
Hvernig er það, verður eitthvað um gestapóa í bænum í kveld. Nú er ég að fara á svokallað rall í bænum og mig vantar að vita hvort það sé þes virði. Því ekki er gaman í hinum svokallaða miðbæ ef vantar aðal skemmtilegheitin þarRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Tölvan mín er í gangi, Consúela uppþvottavél og hjartað mitt.
Ég er kominn til Íslands þannig að ég get vonandi mætt á eitthvað Þarfaþing. Ljómar upp
Velkominn heim, hvurslags.
Ruglingslegt innlegg frá forsetanum, þvílík fjarstæða, daginn sem það gerist munu svín fljúga. Ljómar upp
Er ekki örugglega rjett munað hjá oss að kokteilgrísir þeir er Muss S. Sein átti gátu flogið ? Af sjerstökum ástæðum er orðið afar áríðandi fyrir oss að komast að sannleikanum í því máli Bölvar því að ritstjórn skuli hafa stolið fortíðinni.
Sei sei jú mikil ósköp. Kokteilgrísir gátu flogið, í það minnsta einhver afbrigði þeirra.
Ruggar sér í ruggustólnum og hugsar um liðna tíma
VLADIMIR! SLÉTT JÖRÐ Í UNDIRSKRIFT YÐAR Í STAÐ SLJETTRAR JARÐAR ER ÓVIÐUNANDI! YÐUR VERÐUR GRIMMILEGA REFSAÐ!
Sex seríur af Scrubs á random... fínt meðan maður er að dunda sér
Ef ég hugsanlega ætti leið framhjá söluturni skildi ég kanski staldra við og kaupa princepólokex ef ég ætti leið um rósarunna skildi ég tína eina handa þér og kyssa þig og fara með þér út á granda og skoða skipin og bjóða þér í bíó og kyssa þig og kaupa poppkorn í hléinu og kyssa þig aftur og bjóða þér í sólarlandaferð til Spánar og kyssa þig og koma heima og bjóða þér í Rómantísk mat heima hjá mér
með hvítvín og rækjum og síðan skyldum við fara til samans inn á félagsmálastofnun og betla fyrir rafmagnsreiknignum og nokkrum pulsum og súpuketi og hamsatólgi . Mér finst voða ógeðslegt að kyssast með hamsatólg í munninum finst þér það líka ekki elskan mín?
Ég er nú voða lítið fyrir að standa í kossaflensi við karlmenn.
Ég er nú voða lítið fyrir að standa í kossaflensi við karlmenn.
En konur.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Það er allt annar og kyssanlegri handleggur.
Það er nú gott að vita þaðLjómar upp
VLADIMIR! SLÉTT JÖRÐ Í UNDIRSKRIFT YÐAR Í STAÐ SLJETTRAR JARÐAR ER ÓVIÐUNANDI! YÐUR VERÐUR GRIMMILEGA REFSAÐ!
Líkt og fram hefur komið framar í þræðinum munum vjer síðar meir við heppilegt tækifæri gera formlega grein fyrir þessu mikilvæga máli er veldur mörgum greinilega miklum áhyggjum, hugsanlega meiri áhyggjum en nokkurt annað mál að undanskilinni sumarlokun og e.t.v. aðgerðum óvina baggalútíska heimsveldisins.
Samsæri óvina ríkisins gegn heimsveldi Baggalútíu.
Fangelsar óvini ríkisins af handahófi og hækkar hryðjuverkahömlunarskatt um 5%