Já þið eruð dálítið á eftir þarna fyrir austan.
Þar er komin skýring á þessum viðbúnaði lögreglunnar.
Það tel ég víst. Ertu ekki búinn að vera hér í allan dag?
Og ekki búið að kalla út Víkingasveitina enn?
Mér skilst þeir hafi þokkalegt samskiptakerfi. Það hefur örugglega heyrst af ferðum þínum.
Enda heyrir fólk venjulega ekki með augunum.
Glottir
Rétt hja þér Krossa en hvað veit maður um Offara? Þessi eyru og augu eru ekki eins og gengur og gerist í fólki og hann er kannske ekki meðvitaður um hvernig það virkar hjá okkur.
Vímusi ég vil nú þakka,
verðlaunanna fékk ég notið.
Sjómenn létu flest allt flakka,
fannst í munstrun sitthvað rotið.
Heiðurinn ég þakka þér
að þiggja af mér boðið.
Sjálfum núna sýndist mér
sitthvað vera loðið.
Þú hlýtur að viðurkenna að aðbúnaðurinn var ekki góður og mannréttindi voru brotin eins mikið og hægt er. En málið er bara að mannréttindi voru til sem fyndið hugtak í denn...
Ég verð að viðurkenna að ég sá þetta í allt öðru ljósi núna og mér hryllti við þessu helvíti á köflum.
Sérstaklega þegar ég heyrði skipstjórann lýsa því er einn félagi minn henti sér í sjóinn á ytri höfninni og drukknaði. Hann hét Palli og var fluttur rænulaus um borð í ónefndan togara.
Þegar hann vaknaði krafðist hann þess að verða fluttur í land, ella mundi hann kasta sér fyrir borð og synda. Það var ekki hlustað á hann og Palli lét sig vaða en náði aldrei landi.
Æ ég missti af myndinni, hún er ekki en þá sýnd í bíóinu?
Átti frænda sem lenti í þessu og hafði heyrt sögur af þessu en alltaf fundist það svolítið ótrúlegt. Sérstaklega því þær voru yfirleitt sagðar eftir nokkur glös.
Myndin verður sýnd á RUV á sjómannadaginn 3. júní.