Ég sendi þér einkapóst.
Hvar fær maður svona sólgleraugu?
Glittir í forljótt kvikindið á skjánum í einhverri frétt í blaðinu.
Gerist þungt huxi
Hvern minnir hann mig á?
Ljómar skyndilega upp eins og jólatré á yfirstraum
Alveg Rétt. Lalla Jones.
Brestur í óstöðvandi grát
Bannsettir útburðirnir báru ekki Blaðið út í mitt hús í morgun!
Hvurslags rugl er í þér Hvurslags? Þetta eru ekki sólgleraugu, þau eru bara svona dökk á myndinni.
Það stóð ekki á hugljúfum athugasemdum Galdra fremur enn fyrri daginn.
Ég er sagður koma vel út úr myndinni enda vart við öðru að búast.
Ég er búinn að sjá téða sjónvarpsmynd. Sænska sjónvarpið sýndi hana fyrir nokkrum vikum. Frábær mynd og Vímus fór á kostum!!!
Þarf maður nú að horfa á dagskrá einhvers falsmiðils á sjómannadaginn.....
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hvurslags rugl er í þér Hvurslags? Þetta eru ekki sólgleraugu, þau eru bara svona dökk á myndinni.
Það stóð ekki á hugljúfum athugasemdum Galdra fremur enn fyrri daginn.
Ég er sagður koma vel út úr myndinni enda vart við öðru að búast.
Jamm satt er það og Lalli náttúrulega kyntröll ársins.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Krossa, Þú getur líka séð hana annað kvöld kl. 20,00 eða á mánudaginn kl. 18,00 í Tjarnarbíói.
Ljómar upp
Það má skoða það. Tjarnarbíó er ekki falsmiðill sem sagt?
Hvað heitir svo myndin og er jafn dýrt í Tjarnarbíó og önnur bíó?
Myndin heitir ,, Sjanghæjað til sjós."
Skelfilegar lýsingar maður... mér leið hálf illa að horfa á þetta... þvílíkur þrældómur og mannvonska.
Merkilegt nokk þá fílaði ég þetta líf vel en ég verð víst seint talinn eðlilegur á nokkurn hátt.
Þú hlýtur að viðurkenna að aðbúnaðurinn var ekki góður og mannréttindi voru brotin eins mikið og hægt er. En málið er bara að mannréttindi voru til sem fyndið hugtak í denn...
Það er málið: Menn vissu ekkert um mannréttindi og allra síst þetta lið og það eru til ótal brandarar frá þessum árum sem eru dagsannir. Jói Andskoti kallaðist einn af þessum rónum sem sjaldan sást í lóðréttri stöðu. Andskotinn var eitt sinn að koma í land eftir þriggja mánaða langan salttúr við Grænland.
Áður en hann færi á skrifstofuna að ná í pening datt honum í hug að kíkja aðeins um borð í Þorkel Mána sem lá hinum megin við bryggjuna. Þar var nóg að drekka og Jói að sjálfsögðu þyrstur.
Nema hvað. Andskotinn komst aldrei á skrifstofuna en vaknaði aftur um borð í Mánanum á leið í annan þriggja mánaða salttúr.
Það eru margar myndir Af Guðna Ágústsyni í blaðinu og svo er Grein um klepp er ég kominn á rétta slóð?
Ert þú ekki með Fréttablaðið? Þar er grein um Klepp en ég vissi ekki að Guðni Ágústsson væri kominn þangað en tel það samt hið besta mál. Fréttin um myndina er í Blaðinu og þar sá ég enga mynd af Klepparanum.