Andateljari: Maður á vegum Reykjavíkurborgar sem telur endurnar á tjörninni og drauga í húsnæði borgarinnar.
Ný síða- nýr leikur. Nöfn á nefndum sem ætti að setja á laggirnar.
Vannefnd: Nefnd sem tekur saman og flokkar vanefndir ríkisstjórnarinnar.
Árshátíðarnefnd! Ljómar upp
Nefndarnafnanefnd. Nefnd sem sér um að finna nöfn á nefndir.
Mannanefndarnafnanefnd?
Sem sæi þá um að manna nefndirnar sem þarf að nefna.
Eftirlitsnefndanýstofnunarþarfagreiningaframkvæmdanefnd.
Nefnd er sjer um að framkvæma greiningar á því hvaða þarfir eru til staðar varðandi það að stofna nýjar nefndir til eftirlits með öðrum nefndum.
Árshátíðarnefnd! Ljómar upp
Árshátíðarnefndarnefnd Ljómar upp
Nefnd sem sér um eftirlit með árshátíðarnefnd.
Nefnefnd: Nefnd sem er með nefið ofan í hvers manns koppi.
Mætinganefnd.
Hún hefði umsjón með að fólk mætti hingað.
Nefnd um stöðu Gestapóa í nútíma samfélagi.
Afdönkunarnefnd. Sérstök nefnd fyrir afdankanaða og úr sér gengna stjórnmálamenn.
Árshátíðarnefnd! Ljómar upp
Árshátíðarnefndarnefnd Ljómar upp
Nefnd sem sér um eftirlit með árshátíðarnefnd.
Hèr er væntanlega àtt við àrshátìðarnefndareftirlitsnefnd?