Vaknar inní sjúkraálmu Sádi-Arabísks öryggisfangelsis hlekkjaður á höndum og fótum við sjúkrabeðið
Fer að pæla í því hversu villt þetta partý hafi verið...
Mætir loks á svæðið
Vjer óskum yður hjer með formlega til hamingju með rafmælið og biðjumst afsökunar á hvað vjer komum seint, það tók örlítið meiri tíma en ráð var fyrir gert að útbúa rafmælisgjöfina því oss fannst ástæða til að hafa hana í stærra lagi. Virðist sem það hafi eigi verið vitlaust miðað við hvernig ástandið er Mætir í rafmælisveisluna með 800 skriðdreka, 200 herþotur, 20 kjarnaodda, elipton, nokkrar heykvíslar, 300 skammdræg flugskeyti, 90 langdræg flugskeyti, grjót, 20 njósnagervihnetti, 3 flugmóðurskip, 3000 tonn af kóbalti og 200 tonn af plútóníum
Stormar í partýið. Laumar dágóðum slatta af teygjubyssum í pakkann frá Vlad og gefur Doninum nokkur tonn af kóbaltbættu brilljantíni og ögn af hárgeli
Skál! Svakalega flott veisla!
xT
Sér að skriðdreki keyrir í gegnum vegginn á fangelsinu og fyllist við það óþrjótandi styrk til að brjóta hlekkina, sem hann gerir undir eins
Hoppar því næst uppí skriðdrekann og byrjar að keyra honum í gegnum restina af fangelsinu með þeim afleiðingum að fullt af föngum sleppa og byrja nú að hjálpa Baggalútíska Heimsveldinu, en það hefur nú fyrir algera tilviljun byrjað að legga undir sig allan Arabíuskagann
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Kemur með nokkur þúsund skriðdreka í viðbót og leggur undir sig tugþúsundir ferkílómetra lands
Fer fremstur í flokki og brunar áfram, en sér ekkert nema sand...
Talar í gegnum talstöðina: Vlad, var ekki Írak einhverstaðar nálægt?
Grípur heykvísl og hleypur á eftir skriðdrekanum
vonar innilega að Doninn skemmi ekki fínu sólgleraugun og herdúið
Eftir að hafa keyrt lengi lengi, farið nokkrar krókaleiðir og skotið niður einstaka þorp í millitíðinni kemur Doninn loks að manneskju sem hægt er að treysta og ákveður því að spyrja vegar
Þetta risastóra ljón með mannshöfuð reynist hinsvegar trekt til og segir ekki múkk
Hótar að sprengja þríhyrningana á bakvið stóru ljónmanneskjuna ef hún svarar ekki
Ljónmanneskjan virðist hinsvegar ekki ætla að svara...
Blessaður vertu ekkert að sprengja upp þríhyrningana. Þeir geta komið sér vel sem kóbaltgeymslur.
Hendir lyftiduftssprengju í einn þríhyrninginn
Hey Dúddi, írak er í þessa átt !
Bendir til hægri
Hvað viltu margar Hvæsibombur með þangað ?
Ég vil tuttugu og þrjár, bara af því að það er svo töff tala!
Verður að nota þær rétt!
Beygir til hægri
Ég ætla rétt að vona að þú hafir kynnst 23 áður en það varð að tískufyrirbæri út af hinni ömurlegu Jim Carrery kvikmynd ...
Hvað meinarðu? Jim Carrey er töff!
Reyndar ... en hefurðu séð þessa mynd? Ég hef ekki séð hana, en ég hef séð slæma dóma.
23 kynntist ég síðan í gegnum hina hundgömlu bók Illuminatus! Trilogy.
Ég hef sko séð myndina, og hún var mjög góð, Jim Carrey var náttúrulega í henni!
Jæja, ég trúi þér. Þarf bara augljóslega að sjá myndina og dæma sjálfur. Það er ekki endalaust hægt að láta undirmönunum allt eftir.