Ívar minn , gakk í bæinn bendir Ívari á sófann og byrjar að stokka spilin sín
Ég sé bara peninga og aftur peninga með heppni, heppnin rennur einhverntíma frá þér en þú færð alltaf tækifæri og nýtir þau einnig vel. Þú Hefur notið lífsins og munt gera það áframm í þægindum og lukkunnar velstandi á öllum sviðum.
öfundar Ívar í laumi Njóttu vel og láttu mig vita ef þetta stenst.klappar Ívari á herðablöðin Bið kærlega að heilsa frúnni þinni.
Vímus minn, komdu nú sæll og blessaður minn kæri vinur. býður Vímusi sæti og stokkar spilin vel og lengi
Ég sé að þú hefur alltaf verið og munt verða í erfiðum samskiptum í sambandi við peninga en einhvernveginn hefur heppnin elt þig og mun gera áfram. Ég sé konu sem stendur alltaf við hliðina á þér einsog klettur, hvað sem tautar og raular. Afskiptasemi ókunnugra mun alltaf fara í taugarnar á þér.
Já ég held að þetta sé nú bara alltsamann rétt, klappar Vímusi á axlirnar og knúsar hann að skilnaði
Ljómar upp Takk Dula mín Ég trúi þessu með heppnina. Fer og kaupir lottómiða fyrir aleiguna
En orðsnilldarleikurinn, mun honum e-n tímann ljúka? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ekkert mál kæra næturdrottning.býður henni inn og stokkar spilin sín
Í fortíðinni hefur verið eitthvað um misklíð í kringum þig og þér hefur fundist ekkert ganga upp og þá sérstaklega ekki í fjármálum.
Nútíðin er viðburðarrík og þú ert að fá skemmtilegar fréttir , það eru ferðalög framundan og jafnvel nám.
Framtíðin er björt og tilfinningarík.
Gjörðusvovel. Njóttu vel og segðu mér ef eitthvað passar.
En orðsnilldarleikurinn, mun honum e-n tímann ljúka? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Örugglega einhverntíma en ekki strax, það er einhver með of erfiðar spurningarGlottir eins og fífl
Það er nú bara eitthvað til í þessu hjá þér kæra Dula.
Reyndar kannast ég ekki við að ég hafi átt í miklum fjármálaerfiðleikum í fortíðinni.
Það eru að minsta kosti tvenn ferðalög á næstunni.
En þakka þér fyrir. Gaman að vita að framtíðin er björt.
Takk fyrir mig
Gæti ég fengið spá mín kæra Dula?
Nermal, já endilega tylltu þér vinurbýður nermal til sætis og stokkar spilin sín
Fortíðin sýnir mér rólegheit og að þú sert stabíll og öruggur maður nútíðin og framtíðin fléttast saman því ég fæ bara hjarta og þú ert að detta inn í breytingar og rómantík sem er varanleg. Og ég sé velgengni í fjármálum.
Njóttu vel minn kæri nermal.knúsar Nermal sinn Bið að heilsa jú nó hú.blikkar
Furðuvera mín , endilega gakktu í bæinnbendir á sófann og byrjar að draga ég fæ hérna frekar slæma mynd af fortíðinni, einhverskonar deilur og þrætur við þína nánustu, síðan er allt annað uppá teningnum í dag ekkert nema rólegheitin og rómantíkin , þú ert að bómstra og munt halda því áfram. Það elta þig einhver leiðinleg samskipti úr fortíðinni en þau verða aldrei til þess að skemma neitt. Þetta mun fjara út og ástin mun sigra allt.
Njóttu vel og láttu mig vita ef þetta er bara bull eða ekki. knúsar furðuveru að lokum
En orðsnilldarleikurinn, mun honum e-n tímann ljúka? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Örugglega einhverntíma en ekki strax, það er einhver með of erfiðar spurningarGlottir eins og fífl
Juuuu, hver ætli það sé?
Kærar þakkir fyrir spána. Ljómar upp
Hvenær sem er fyrir þig mín kæra.Ljómar upp
Lopi er næsturbýður Lopa til sætis og stokkar spilastokkinn sinn, dregur 3 spil
Fortíðin þú hefur verið mjög vel virkur sem barn og áttir ávallt erfitt með að slaka á.
Nútíðin segir mér að það sé von á fjölgun í fjölskyldunni þinni eða einhverjar varanlegar breytingar.
Framtíðin segir þér að gæta skapsmuna þinna og láta hugmyndir eða skoðanaskipti ekki fara út í rifrildi, það verður að skoða gaumgæfilega allar ákvarðanir og enga fljótfærni .
Klórar sér í höfðinu Sko þá er það komið og passaðu skapið Lopi minn. Láttu mig vita hvort þetta stemmir við þig. Bless bless.sendir Lopa fingurkoss
Takk fyrir þetta. Þetta gæti passað, ég hef allavega aldrei verið ofvirkur en vel virkur jú en ég hef nú alltaf getað slakað á ef ég vil. Spennandi Þetta með fjölskylduna. Passa mig að rífast ekki. Reyndar geri ég það reyndar nánast aldrei.
Já , auðvitað gæti ég oftúlkað spilin en ég er fegin að þetta er athyglisverð spá fyrir þig Lopi minn.Ljómar upp
jahérna. en spennandi. þú gæti kannski gluggað í stokkinn fyrir mig..?Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Já litlanorn alveg sjálfsagt mál. gjörðusvovel og tylltu þér , stokkar spilin og leggur þau Þú hefur verið mjög misheppin með peninga í gegnum tíðina en þetta lærist allt og mun batna eftir því sem tíminn líður, þú átt eftir að fá tækifæri sem þú græðir á og ert í nokkuð góðum málum í lífinu ef þú ert með opin augu fyrir tækifærinu.
Sko, þá er það komið allavega í bili.veifar litlunorninni glaðlega að lokum Láttu mig vita hvort ég sé að bulla eða ekki.