Jú Galdri minn, ég sé hér múg og margmenni, aðallega karlmenn sem hafa gaman af því að skiptast á skoðunum, það verður nú samt eitthvað um þrætur og það kannski eru ekkert allir nógu sáttir, hvort það er vefurinn eða innbyrðis.( Allavega skil ég ekki baun í bala í þessu kaffiblútur ef ég á að segja alveg einsog er) En þetta verður notað af karlkyns gestapóunum í meira mæliGlottir eins og fífl Þeir eru nú líka fleiri.
Þetta lítur sem sé ágætlega út með sumarið.
Ljómar upp
Verði þér að góðu Galdri minn. Lokar og læsir
Fattar að hann er læstur inni
HLEYPIÐ MÉR ÚT!
AfsakaðuGlottir eins og fífl Ég skal opna fyrir þér.hleypir galdra út
Skrönglast út í andlegu sjokki
Eins gott að vera ekki lokaður hér inni í allt sumar.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Má ég vera fyrst til að fá spá á þessum nýja leikvetri...?
Hey.. hvað er Málið... Helduru að það sé bara frí endalaust.. Hvað þarf maður að bíða lengi eftir einni spá... Glottir eins og fífl
Elskurnar afsakið hvað ég er búin að vera lengi að hafa mig til, en ég var að byggja mér smá höll svona til að dunda mér í sólinni hér í sumar. sýnir bleiku höllina sína með risabros á vör
Ég vil endilega fá spá.
Geturu líka sagt mér hvað þessi draumur þýðir sem mig dreymdi um daginn?
Þingvallavatn var girðað með vírgirðingu, hárri. Fullt af fólki var í kring að henda nýfæddum hvolpum yfir girðinguna og út í vatnið og ég gerði eins og ég gat að troða höndinni á milli víranna og ná í hvolpana, ég náði nokkrum en ekki öllum.
Hvað þýðir þetta?
Elsku Auli, hvernig leið þér og hvernig var vatnið í draumnnum, hvernig var stemmningin hjá fólkinu og þekktirðu eitthvað af því.
Vatnið var svart, ég var hrædd og það var æsingur í fólkinu.
Mín kæra. þetta er líklegast fyrir einhverjum veikindum og ef þú varst hrædd og fólkið æst þá er eihver órói í kringum þig.
Tek spáspilin upp á eftir , takk fyrir þolinmæðina.
Hæ Dula ég er svoldið auralaus núna gætirðu spáð fyrir mér smá lottovinningi?
Offari minn þú færð kannski lottóvinning ef þú kaupir þér miða.Glottir eins og fífl
Dula! Spáðu fyrir mér!
Ég er pínu skotin
Ljómar upp
Dula mín spáðu fyrir mér! Þetta er tækifærið til að kanna hæfileika þína.