Flissar
frussar
Talandi um fána, þá var ég að stinga uppá því að ég yrði gerð að Skátahöfðingja Baggalútíu. Þarf ekki að hafa skáta til þess að vera verndarar fánans og bera hann á tyllidögum?
Eða þá að nú sé komið að írska fánanum. Grænn, brúngulur og hvítur.
Það er bara snúið út úr fyrir manni Geiflar sig á undarlegan hátt
Alls ekki, lestu fyrsta innleggið.
Og lagðaðu nú línuna í fullyrðingamótinu, allar línur eiga að ríma.
Alls ekki, lestu fyrsta innleggið.
Og lagðaðu nú línuna í fullyrðingamótinu, allar línur eiga að ríma.
Ég vil biðjast afsökunar á því að hafa í gáleysi mínu ekki lesið fyrsta innleggið á þessum þræði sem og að hafa hent inn vitlausri forsetningu í fullyrðingamótinu. Ég hélt í gáleysi mínu hér að á þessum þræði væri um væri að ræða Baggalútíufánann. Glottir auðmjúkt en brosir svo eðlilega
Nú er línan í fullyrðingamótinu ofstuðluð (bara tvö orð mega vera byrja á sérhljóða/sama samhljóða), þannig að ef þú tækir Arnarstapa út og settir einhvern annan stað í staðin (helst sem byrjar á samhljóða) þá verður þetta fullkomið. Borgarnes? Vestfirði?
Búin að laga það Regína mín, ég er alger bjáni þegar kemur að því að lesa leiðbeiningar. Ætli það sé þessvegna sem að örbylgjuofninn minn sprakk? Starir þegjandi út í loftið
Sprakk örbylgjuofninn? Í alvöru? (Settiðru málmhlut í ofninn?)
Allt í lagi það gerðist ekki í alvöru, þetta var bara eitthvað sem væri dæmigert fyrir mig. Smá skreytingar á frásögnum hérna megin.Brosir út að eyrum
Þetta er uppáhaldslitasamsetningin mín. Ljómar upp