Ég þar nú að fara breyta undirskriftinni í XB fram að kosningum því nú orðið eru til svo fáir sem vita hvert þeir eiga að setja xið.
Ég hef aldrei kosið annað en Framsókn. Ljómar upp
Þar fór þetta með siðferðið....
Aldrei kaus ég Framsókn.
Glottir við tönn
Ég hef aldrei kosið annað en Framsókn. Ljómar upp
Þar fór þetta með siðferðið....
Glottir
Ég skil hugrenningatengslin siðferði/Framsókn og skv fyrirséðu hruni framsóknar er siðferði ungviðisins sem kjörgengi hefur á batavegi. Ég legg til að Framsóknarflokkurinn verði endurnefndur og heiti héreftir Bakflæðisflokkurinn.
Hm ... ég skil þessa þögn. Þetta er eins og inni á Tóma þræðinum, maður svífur í lausu lofti í geiminum. Framsóknarflokkurinn hefur greinilega líka læst hér klóm sínum í krafti auðsins sem flokkurinn hefur sópað að sér í stjórnarsetunni og stöðvað umræðuna.Brestur í óstöðvandi grát
Lengi hafa þeir eldri kvartað yfir ungdóminum... og það mun ekkert breytast.
Það er ekki út af því að ungdómurinn sé svo hræðilegur, heldur einfaldlega vegna þess að þeir sem eldri eru eru búnir að gleyma öllum asnaskapnum sem þeir gerðu á sínum yngri árum.
Sei sei já.
aaahhhh..... ekki alveg.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þarna komstu með það.
Eitt nærtækt dæmi er ég og systkini mín í gamla daga þegar mamma okkar var að basla við að ala okkur upp, mér fannst við láta oft einsog fávitar og hún var alveg að missa þolinmæðina. Núna í dag kem ég með mín eigin börn til hennar og henni blöskrar hávaðinn og uppátækjasemin í þeim. Mér finnst við hafa verið vargar en hún man það ekki lengur og segir að börn í dag séu ofdekruð og frek.Glottir eins og fífl Jú jú leyfum heni bara að halda það. Ég veit betur.
Ef ég miða við sjálfan mig á mínum unglingsárum þá er útkoman alltaf unglingum nútímans í hag.
Reyndar fíla ég ungdóminn vel og flestir unglingar fíla mig sérlega vel og segja mig ekkert líkan öðrum gamalmennum. (Veit ekki hve jákvætt það er)
Fyrir nokkrum árum var ég á gamalli Lödutík og nokkrir töffarar ætluðu aðeins að fíflast í þeim gamla.
Er þessi bíll til sölu? spurði yfirtöffarinn og hinir biðu glottandi eftir svari gamalmennissins.
Þeir skelltu líka heldur betur upp úr þegar ég játaði því að tækið væri til sölu en gallinn væri sá að í fyrsta lagi hefði hann ekki efni á að kaupa slíkan eðalvagn og í öðru lagi væri hann svo þungur í stýri að svona tittur eins og mér virtist yfirtöffarinn vera, gæti ekki einu sinni skipt um akrein á honum hvað þá meir.
Ég var andskoti vel massaður á þessum tíma svo ég dreif mig úr jakkanum og spurði hvort þeir væru ekki til í eina æfingalotu þar sem ég hefði gleymt að taka geðlyfin mín þennan daginn.
Þá þagnaði hláturinn og skelfingarsvipur tók við. Eftir þetta koma þeir hlaupandi hvar sem þeir sjá mig og hlæja sig máttlausa yfir bullinu í mér.
Unglingar hafa oft bullandi skemmtilegan húmor ef þeir fullorðnu nenna að hlusta á þá.
pff siðferði.. Ég trúi ekki á neitt sem er ekki áþreifanlegt!
Trúi reyndar ekki á neitt
Þreifar á Frella
Hvert í þreyfandi.
Er ungdómurinn mættur með brjálæðismúsíkina sína og sín djöfullegu átrúnaðargoð ?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Þessi þráður hefur engan tilgang!
Byrjar að reykja og skiptir vikulega um kærasta