Vegna þess að foreldrar þeirra voru hippar.
Vegna þess að mömurnar hanga á baddnalandi í staðin fyrir að ala upp krógana sína?
Vegna þess að mömurnar hanga á baddnalandi í staðin fyrir að ala upp krógana sína?
Kjaftæði, það er vegna þess að feðurnir horfa á fótbolta og gera við bíla í stað þess að ala upp börnin sín.
Hvaða þvæla. Þetta er auðvitað börnunum að kenna. Þau eru svo vitlaus.
Sigrar barn í skák. Dansar sigurdans og ullar á barnið
Hver þarf siðferði í nútímaþjóðfélagi? Heimurinn endar hvort eð er eftir 43 ár (allavega skv. Civilization).
Ég hef reyndar alltaf haldið því fram að mannlegt siðferði sé til trafala í siðmenntuðu samfélagi hrotta og illmenna.
Nútímamaðurinn hefur ekki tíma til að sinna ungdómnum. Það ætti að sameina elliheimilin og leikskólana, þá myndi þetta leysast af sjálfu sér.
Já fín aðferð til að koma uppeldinu af sér og yfir á einhverja aðra.
Já, miðað við ástandið eins og það er í dag, þá er þó skárra að láta gamalmennin uppfræða ungdóminn. Það er einmitt það sem ég er að gera núna og hlustaðu nú barnið mitt.
Ég hlusta. Þú ert þá væntanlega hlynntur gömlu aðferðinni að dangla svolítið í ormana á morgnana til öryggis ef þau myndu gera eitthvað af sér.
Heldurðu að ég sé einhver barbari?
Allir vita að gamalmenni eru síst líkleg til að leggja hönd á börn, þau leggja hönd á plóg. Ég man það eitt sinn er ég var við vinnu við plóginn með truntunni henni Stjörnu, sem var að því er mig minnir orðin tívetra þá og nokkuð lúin enda búin að vinna sem hestur um alllangt skeið, hún var þó alltaf hölt á skeiðinu en gat tölt á við fullnema stóðhest. Stóðhesturinn Sölvi hafði mun betri og fjölbreyttari gang, þó varla eftir að hann braut af sér skeifuna í göngum hér um árið, það var árið 1932 að mig minnir og við vorum að fara yfir hraunið þegar skyndilega gaggaði tófa rétt austan við okkur, heldurðu að Sölvi hafi ekki dottið úr takti í hrauninu og brotið skeifu. Það þótti mikil óheppni að brjóta skeifu enda kom það í ljós með haustinu. Haustið var óvenju hlýtt en þó kom kuldakafli rétt áður en haustvertíð hófst. Margir voru þá lagðir af stað suður með sjó og hvað er ég eiginlega að tala um?
Nútímamaðurinn hefur ekki tíma til að sinna ungdómnum. Það ætti að sameina elliheimilin og leikskólana, þá myndi þetta leysast af sjálfu sér.
Er þér sama þó ég steli þessari briljant hugmynd frá þér og boði þessa nýjung sem sölutrix Framsóknarmanna.

Að sjálfsögðu, ég mun kjósa framsókn ef þeir koma fram með svona góða tillögu.