Arrested Development... yndisleg vitleysa...
Ég var að horfa á einhverja kommúnistamynd. Ég ældi og skaut mig nokkrum sinnum í huganum, það sem maður gerir ekki til að kynna sér óvininn... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þetta hér:
http://www.youtube.com/watch?v=MekqZKJDd20&mode=related&search=
Ég sá þetta í beinni á sínum tíma. Ó hvað þetta var pínlegt, ég fann verulega til með greyið konunni. Þarna í athugasemdum kemur reyndar útskýring á því hvers vegna hún var svona ótrúlega stressuð.
Já það er magnað svo að sjá hvað fólk er að tjá sig eftir að konan sjálf útskýrir sína hlið í athugasemdunum.
Ég nennti ekki að sjá þetta til enda, ég þarf greinilega stærri tölvu. Ég sá tvær sekúndur í einu og svo tók örugglega hálfa mínútu að hlaða inn næstu tveim sekúndum.
Ég leyfði þessu að hlaðast inn í rólegheitum í smábútum, svo ýtti ég bara á "Watch again" og þá rann þetta hnökralaust, þ.e.a.s. upptakan sjálf.
Aha, auðvitað.
Criminal Minds... og er að fara glápa á Heroes.
http://kisi.is/home/Films/DorksDamsels/Trailer/
Trailerinn úr Astrópíu... þetta verður æðisleg mynd!
Neisko, takk fyrir þetta Grágrímur.
Svipast um eftir frænda sínum í hlutverki skrýmsls
Þetta virðist bara vera langtum betra en ég þorði að vona!
Horfa á fréttir Rúv.
Erkihálfvita hanga í loftinu með krókum í holdi sínu í von um einhverja trúarlega upplifun.
Sumir þurfa að fá sér líf.
Var einmitt að horfa á það sama, undarleg iðja.
Ég sá þetta líka, gat ekki annað en hlegið að fáránleika þessa athæfis.
Kastljósið sýndi brot úr eldgömlum veðurfréttatíma.
Mikið var gaman að sjá gamla veðurkortastandinn sem hægt var að snúa og sýna allar fjórar hliðarnar - og veðurfræðinginn með ALVÖRU bendiprik. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Erkihálfvita hanga í loftinu með krókum í holdi sínu í von um einhverja trúarlega upplifun.
Sumir þurfa að fá sér líf.
Ég man eftir þessu. Ljómar upp