Stundum þegar ég er að lesa einhverja spekina hér á Baggalúti kemur fyrir að ég smelli þrisvar í góm og hristi höfuðið hægt um leið. Svona: Smellir þrisvar í góm og hristir höfuðið hægt.
Það kemur fyrir að mig langi til að skrifa þetta, en þá er ekki til neinn bókstafur sem tjáir þetta hljóð á íslensku.
Sjálfsagt erþó til rittákn fyrir þetta á búskmannamálum eða öðrum þeim málum þar sem þetta hljóð er algengt í talmáli.
Mig minnir endilega að ég hafi einhvern tíma séð skrifað eftirfarandi: tsk, tsk, tsk. Mér hefur dottið í hug að viðkomandi ritari hafi ætlað að skrá umrætt hljóð, en líklegra er þó að þarna standi þrisvar sinnum skammstöfunin fyrir teskeið.
Hvað segið þið Bagglýtingar góðir. Getum við komið okkur saman um hvernig eigi að tákna þetta hljóð? Til dæmis 't, eða ß, eða ^c?
Ég varð að hætta að koma hingað lengi vel af því að ég hristi hausinn of mikið.
Læknarnir sögðu mér að ég væri komin með heilaskemd af þessu og hálsinn hefði styst um fjóra sentímetra.
Það þarf kannski tákn fyrir höfuðhristingar líka.
Annars á að hreyfa höfuðið fram og til baka en ekki í hringi.
Þegar ég smelli í góm heyrist hljóð sem er best lýst með tokk.
Ég meina ekki tokk, það er of aftarlega.
Ég held að það heyrist: d~i.
d~í?
Dlo(k)? Er það hljóðið. Er hljóðið myndað með því að láta tungubrodd falla úr efri gómi niður að neðri tannrótum?
Eða er þetta hljóð þar sem tungubrottur er nálægt efri hluta gómsins, lofti lokað og hleypt af en tunga snertir ekki neðri góm? Þá myndi ég kalla hljóðið (s)tu.
Þetta hefst á einhvers konar öfugu dje-i (dje á innsoginu), svo er hálfgert uppbrotið hljóð sem mætti kannski helst kenna við err (og því tákna ég það með bylgju) og svo endar þetta á i-i. Ljómar upp
Ég er ekki að meina dlo-(k) hljóðið sem maður notar stundum við litla krakka. Ég held að Billi sé nær þessu nema ég kannast ekki við neitt i.
Tungubroddur rétt fyrir aftan tennur (ef þær eru til staðar) og smellt í góm.
Það er eiginlega rétt. I-ið er meira svona tilfinning sem ég fæ, frekar en hljóð sem heyrist.
D~
Æ ég gefst upp. Hef reyndar aldrei skilið þetta smella í góm dæmi. Heyri fólk aldrei gera þetta. Það er aðallega í bókum sem fólk virðist gera þetta.
Þú ert þó ekki skáldsaga Regína?
Nei, hún er ritröð. Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Veltir því fyrir sér hvort hún sé skáldsaga Veit ekki, en þú?
Öll eintök af Tígulgosanum eru gulnuð. Ég vissi ekki að þú værir svona gamall. Smellir þrisvar í góm og hristir höfuðið hægt.
D~ D~ D~ Virkar þetta?
Ljómar upp Já, það svínvirkar.
D~ D~ D~ Er þetta þá niðurstaðan?